29.4.2010 | 11:37
Vorið er að koma...;)
Æ..hvað það er gaman að sjá trén í garðinum þessa stundina. Þau eru byrjuð að laufga og grasið að grænka. Og ekki verður langt í að sólin fer að skína sem aldrei fyrr. Og þá er bara að ná í sólstólana og borðið og ekki má gleyma grillinu sem bíður spennt eftir að komast í notkun eftir að lúra í bílskúrnum í allan vetur...
Svo styttis í að ná sér í falleg útiblóm sem gleðja augað allt sumarið ... og auðvitað að gera eitthvað sniðugt í garðinum. Yndislegt að dúlla sér á heitum sumardegi úti við, léttklæddur og sólbrúnn. Brúnin léttist á mörgum á slíkum degi og fólk er glaðara í bragði...brosir meira....ahhh... ég hlakka til þessara yndislegu daga sem eru rétt handann við hornið...



Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Facebook
Athugasemdir
sammála þessu mamma get ekki beðið eftir sumrinu og að geta eitt því heima og hjálpa mömmu sín í garðinum :) Bara góðir tímar framundan
Írena (IP-tala skráð) 1.5.2010 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.