Næst yngsta...;)

Inga systir mín er búin

að fá það...loksins...Wink

Sem margir í hennar sporum eru ...."enn..... að bíða eftir..."

"Nýra...."

Kannski ....í daglegu tali finnst öðrum  sem ekki þekkja til.....þetta ekki vera tiltökumál

en ég skal segja þér/ykkur ...að það er svooo..sannanlega annað uppá teningin kastað í

þessu tilfelli.....

Þetta er spurning um að lifa eða deyja.Heart

Og ég mun seint gleyma fórnfýsi frænda míns hans Dadda (sonur Marý systur minnar og Mara pípara) 

að gefa henni Ingu systur okkar ....nýtt líf.

Það er nokkuð sem er aldrei nógu vel þakkað

 

 

 

 

19167_1307759046674_1011503086_30945834_1734146_n

 

Ég og við fjölskyldan verðum honum að eilífu þakklát fyrir fórnfýsi hans og ekki síst hans einstöku bjartsýni og gjafmildi á lífið og tilveruna.Tounge

Þetta var bara ekkert mál...sagði hann..og læknarnir voru himinlifandi yfir þessum einstaka lífgjafa og hversu einstaklega heill hann var í þessari guðsgjöf til frænku sinnar...InLove

Og allt gekk upp...

 

Frá fyrstu kynnum við frænku sína og nýrað hans Dadda.... var komið á sinn stað í Ingu..fúnkeraði allt eins og klukka...Grin

Læknarnir voru himinlifandi yfir hversu vel Inga tók vel við þessu "nýja líffæri "frá frænda sínum ...Heart

Þetta voru góðar fréttir fyrir okkur öll..LoL

 

Ekki síst fyrir okkur fjölskyldu Ingu sem vorum á hliðarlínunni

og fylgdumst með veikindaferli hennar..

Okkur var oft hugsað til mömmu okkar sem féll fyrir aldur fram úr þessari nýrnaveiki

Blessuð sé hennar minning alltaf og ætíð...HeartHeartHeartInLove

 

Og efalaust hefir systir mín ekki gert sér grein fyrir.... í sínum  veikinum hversu áhyggjufull við vorum.

Við vorum flest tipplandi á tánum kring um hana og gerðum það besta úr öllu...hvað annað gátum við gert.

Ekki gátum við sagt að við hefðum áhyggjur ...

En ég get sagt að ég hafði allavega trú á að þetta myndi "reddast" eins og okkur Íslendingum er í blóð borið.

...Enda voru bænir mínar henni til handa fullar af trú á það besta í lífinu .Halo"

Því þetta ferli hennar hefur tekið á okkur öll ....

sem erum henni næst

þó hún viti ekki að því fyrr en í dag

þegar ég skrifa þessa grein...Heart 

...Mér þykir óumræðilega vænt um þessa næst yngstu systur mína.Kissing

Hún hefur átt erfitt uppdráttar í lífinu.

Og ég bað mömmu okkar að vera henni innan handar..sem hún og gerði þessi yndislega manneskja sem við elskuðum af öllu hjarta. InLove

Ég vona innilega að hjarta hennar Ingu  sé fullt af tiltrú á lífið (sem var ekki áður ) Nýtt líf..ný byrjun...2 barnabörn...extra góða syni sem hafa svo sannanlega plummað sig í lífinu.

Báðir hamingjusamir og eiga góðar konur og gullfallegar báðar tvær...InLove

Hvað er hægt að hugsa sér betra....Smile 

Á 2 barnabörn til að leika sér við um "ókomna framtíð "...

Kær kveðja úr Kollukoti...Grin

Hvers getur maður óskað sér betra....Grin 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að segja frá því að þessa helgina eru Goslok í Eyjum Hitti drenginn hann Dadda

i Skvísusundi og fékk að faðma þennan öðling að mér..;)

Æ hvað það var gott...)

Kolbrún Vatnsdal (IP-tala skráð) 3.7.2011 kl. 06:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband