Í þá gömlu góðu daga.....:) :)

Sumir eru í ÞÓR aðrir í og svo breyttist það í ÍBV eftir sameinigu félaganna en undir niðri kraumar í gömlum glæðum. það verða alltaf til ÞÓRARAR og TÝRARAR og þegar líður að þjóðahátíð fara menn að spá í hvort þetta sé Þórs-eða Týshátíð í ár.

Hér áður fyrir sögðum við Þórarar að guð væri í ÞÓR og það sagði mamma mín líka hún Sigga frá Vatnsdal enda Þórari af guðsnáð.Enda alltaf svo gott veður er félagið mitt hélt hátíðina..Grin Allavega mjög oft...

Var reyndar að spá í eitt..hvaða Íþróttafélag hélt fyrstu hátíðina..verð að viðurkenna að ég veit það ekki og væri gaman að fá að vita það. Held nú samt að það hafi verið Íþróttafélagið Þór ..af hverju held ég það..bara.. eins og krakkarnir segja. Ætla að halda mig við það þar til annað kemur í ljós..Kissing

Hér áður fyrr er félögin voru tvö var virkilega lagt í allan umbúnað Þjóðhátíðar og hvort félag fyrir sig lagði metnað í skreytingar og teikningar sem skrýddu sölubásana í Herjólfsdal ásamt danspöllunum. Og alltaf jafn spennandi að fylgjast með hvað yrði sett í tjörnina það árið. Og hugmyndirnar voru frábærar og félögunum til sóma..var alltaf smá sperringur milli félaganna að hafa flottara en félagið á undan og það vantaði ekki. Okkur var sífellt komið á óvart með skemmtilegum skreytingum í tjörninni.

Brúarsmíði Valtýs -Þórara með meiru hefur staðið uppúr gegnum árin og enn stendur hún sína plikt og skreytir tjörnina á hverju ári. Þrátt fyrir að brúin skartaði á hverri Þórs þjóðhátíð voru Þórarar alltaf með eitthvað alveg sérstakt aukaskraut í tjörninni. Enda hefur brúin verið í mínum augum afar rómantískt verk og afar falleg..sérstaklega á kvöldin þegar ljósaskreytingarnar lýsa hana upp...Heart

 

 

575720_4855803586722_358568749_n_1200156.jpg

 Brúarsmiðurinn frækni..Smile

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Því miður er ekki lengur jafn gaman að fylgjast með undirbúningi Þjóðhátíðar eins og var.

Allur sjarmurinn er horfinn og einnig allur metnaðurinn sem félögin Þór og Týr bjuggu yfir og ég er ekki ein um þá skoðun. Hver hátíð er eins og þú hafir aldrei farið af þeirri síðustu....

 

 

Imba amma á ÞórsafmæliIngibjörg Ólafsdóttir

eða Imba frá Vatnsdal móðuramma mín.

En þarna var hún heiðruð fyrir störf í þágu félagsins

m.a stóð hún í mörg ár í veitingatjaldinu og sá um hungraða og þyrsta..Wink

 

 

 

 

 

 

Sigurður afi og Imba amma frá Vatnsdal Með Þórs merkið í barminum

 Sigurður Högnason og Imba frá Vatnsdal

mér er sagt að afi minn hann Sigurður hafi verið

einn af stofnendum Þórs..Heart

 

 

 

 

 

 

 

Kvennahanboltalið Þórs vestmannaeyjumOg hérna er flott mynd af Handboltastelpunum

í Þór. Mamma mín Sigga frá Vatnsdal er hér

í fremstu röð til vinstri.

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég önnur frá vinstri Og auðvitað tók undirrituð þátt í félagsstarfi ÞÓRS

og var í Frjálsum íþróttum og keppti í 100 m

200m og 4xhundrað m hlaupi.Langstökki,hástökki og þrístökki.

Reyndi fyrir mér í kúlunni og spjótinu en það gekk ekki og lét Siggu frá Vatnsdal (mömmu) um þá hliðina. Enda afar kröftug í þessu. Við mæðgurnar fórum í nokkur skipti saman á Íþróttamót og þá aðallega við Kópavogsbúa og meira að segja bættist einn fjölskyldumeðlimurinn í hópinn hann Óli frá Vatnsdal bróðir mömmu og tók Sleggjukastið..Grin

 

Undirrituð er önnur frá vinstri  þarna er verið að undirbúa 100m hlaup í Kópavogi

Erla Dolla Týrari  til vinstri hörku-langhlaupari. Við kepptum oft í denn hún fyrir Tý

og ég fyrir Þór. Og þó svo mér sé óljúft að viðurkenna það að þá vann hún mig

yfirleitt í lengri hlaupunum...Tounge

Gert til gagns og gamans

kveðja úr Kollukoti Grin

 

 _orskerti_3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Er að gera þessar kertaskreytingar

mér til yndis og öðrum til ánægju.

Ég er með síðu á facebook sem heitir:

Konan með kertin

 

Þar gefur að líta ýmislegt

sem ég er að gera í tómstundum og hreinlega elska að gera þessi kerti. Enda falleg gjöf handa vinum og ættingjum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband