17.3.2009 | 15:09
Í stuði....
Jæja...mín er bara búin að vera í miklu stuði
að skrifa hérna inn eitt og annað bæði í gær og í dag.
Svo það eru að minnsta kosti tólf nýjar færslur til að kíkja á
og ýmislegt á léttu nótunum ha..ha
Ég er alltaf að gramsa í gullkistunni og dett niðrá eitt
og annað mismerkilegt. En sem gaman er að leyfa öðrum
að njóta. Mig vantar reyndar ýmislegt sem ekki hefur fundist
ennþá og er það líklega uppá háalofti..hmmmm
Bið minn að ganga í málið....
Bestu kveðjur í bili úr Kollukoti
Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Facebook
Athugasemdir
Sæl Kolbrún Harpa, mikið er gaman að lesa hvað þú ert í miklu stuði til að skrifa, og að ég skuli njóta þeirra forréttinda að geta lesið allt sem þú vilt leifa okkur að lesa hér inn á heimasíðunni hjá þér, ert þú til í að skila kveðju til þín og þinna?
Kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 19.3.2009 kl. 11:47
Takk Helgi minn.
Tilganginum er náð ef bæði þú og aðrir hafið gaman af párinu mínu
enn og aftur takk fyrir.
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 19.3.2009 kl. 12:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.