28.4.2009 | 15:52
Dagurinn í gær :)
Mikið var dagurinn í gær yndislegur í alla staði.
Og ég lýg því ekki að hitamælirinn var næstum tuttugu gráður.
Og það var yndislegt að setjast hérna út á pall með
nýlagað kaffi og ilmandi ristað brauð...
Hlusta á Lóuna í fjarska og aðra fugla sumarsins syngja
fyrir mig. Hundarnir makinduðu sig í sólinni og leið
augsýnilega vel ...eins og mér. Kannski veit þetta á gott sumar þegar sólin fer að klífa hærra og setjast enn seinna og slær roðagulli á fjöll og tinda og kyssir okkur góða nótt.
Og eins þegar hún vekur okkur snemma morguns og bíður okkur góðan dag í allri sinni fegurð.
Það er svo sannarlega þakkarvert að eiga heima á þessum fallega stað sem Heimaey er og fá
að njóta þessarar margbreytilegu náttúrufegurðar sem hún hefur uppá að bjóða.
Erindi úr einu ljóða minna Óskasteinninn:
Svo dýrmæt gjöf sem eyja..eyja þessi er
svo fagrar hennar björtu sumarnætur.
Atlantshafsins eðalsteinn...eðalsteinn hún er
í hjörtum okkar festir djúpar rætur.
Megum við njóta fleirri svona daga
Kærar kveðjur úr Kollukoti
Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 15:53 | Facebook
Athugasemdir
Já það var sko ekki leiðinlegt þegar sú gula vakti mann með heitum kossi þarna um daginn :) Ég er hinsvegar svo skrítin að þegar ég vakna svona í glaða sólskini verð ég að fara og taka allt í gegn hér heima !!!! Rugluð !!!!jamm :)
Ennn ég fékk nú notið dagsins eftir hádegi þegar ´þú kíktir í heimsókn.....úfffffff hitinn á pallinum hefði nú ekki mátt vera meiri að mínu mati.
Þú hinsvegar hefðir örugglega ekkert kippt þér upp við tíu til tuttugu gráður í viðbót þarna beikonið þitt...hahahahahahaha :)
Helena, 29.4.2009 kl. 14:57
Ha..ha..ha
ég bara elska sólina og hitann...ég væri ábyggilega best geymd á einhverjum heitum stað yfir vetrartímann því ég þoli ekki að vera kalt og allra síst hin síðustu ár.
Bæ..bæ kveðja frá Porký
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 29.4.2009 kl. 16:01
Helena, 30.4.2009 kl. 15:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.