1.5.2009 | 09:25
Elsku vina mín
Elsku hjartans mamma mín...hve sárt ég sakna þín
þú ert svo,nálægt mér..á þessari stundu
Guð á helgum himni.....Mamma...hve sárt ég sakna ég þín
vina mín..á margri gleðistundu.....
Í hvert sinn er ég heyri..gleði og hlátrasköll
ég lít í kring um mig og leyta að þér
Því sérhver gleðihlátur,. er sem ljúfust vetrarmjöll
þetta er eitthvað, sem að þú barst... með þér....
Þú ert mér elsku mamma....svo dýrmæt vina mín
ég elska að hugsa til þín alla daga
Ég elska tilvist þín... elsku mamma mín
ég þrái faðm þinn hlýjan..... alla daga
Tilvist þín er heilög og mín ást til þín
ég sakna þín og vil helst fá þig aftur
Ég veit, þig hitti þig seinna ....elsku mamma mín
og þá getum faðmast aftur, aftur..aftur...
Ég veit samt ég hef misst þig..allavega um stund
og eflaust sjáumst..ekki...um langan...tíma
en elsku góða mamma, er ég tek minn, góða blund
ég vakna ..kannski seint.......um sumartíma

Mamma mín Móðir sex dætra og eins sonar. Hún var aðeins 59 ára þegar hún lést. Átti stuttan..... allt of stuttan búskap með Bigga stjúpa frá Sólheimum en þau héldu heimili að Illugagötu 79.... Mamma var frá Vatnsdal, dóttir Sigurðar Högnasonar og Ingibjargar Ólafsdóttur frá Vik í Mýrdal....... Við erum sex systurnar og einn bróðir sem hún fæddi af sér þessi eðalkona.Ég elst f: 54 .....svo komu ÞRÍBURAR f: 55.... svo Inga 2 árum seinna f:57'...Elfa Sigurjóna f: 63' Surtsey...Kolbeinn Freyr..f:73' Heimaeyjargosið eða í Keflavíkþað sama ár.... Ég sakna hennar á hverjum degi þessarar elskulegu konu...

Blessuð sé minning þín elsku mamma mín... Þín Harpa
Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Breytt 1.1.2011 kl. 07:09 | Facebook
Athugasemdir
Gráti allir englar.....því mér blæðir i hjarta mínu af söknuði eftir móður minni.....
Þannig er dagurinn 1.maí að byrja og ég græt..því á þessum tima fyrir 17 árum vakti ég ásamt systrum mínum og eiginmanni....hennar..yfir þessari svo heittelskuðu manneskju þar til hún lést að morgni 2 mai.
1992. Ég fékk tækifæri til að strjúka og faðma og kyssa fyrir öll þau ár sem við Mamma fórum á mis við..gegnum tíðina.
Mamma var og átti alltaf að vera til staðar....allt í einu var hún horfin.....
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 1.5.2009 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.