Góðar minningar :)

Súlli og IrenaÞennan mann þarf varla að kynna til sögunnar en samt má segja frá því að hann heldur á Írenu Lilju, barnabarni sínu og dóttur minni sem í dag er orðin 21árs.

Og ég á bara góðar og skemmtilega minningar um hann Súlla og hversu einstaklega barngóður hann var enda var hann eldri börnunum mínum Helenu og Davíð sem afi og sóttist  Davíð, sérstaklega eftir að umgangast hann eins oft og mögulegt var.

Enda held ég að Davíð minn sæki ævintýramennskuna og allt úteyjarlífið til hans.Því Súlli var náttúrubarn og ævintýramaður af guðs náð.

Hann var sögumaður hinn skemmtilegasti og hver og einn þagnaði er hann hlustaði á gamla manninn. Fróður maður með eindæmum.

Blessuð sé þín minning Súlli minn

 

sólarlag

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband