Smá grín í formi keðjubréfs....

pink hjartaKæra vinkona.

 

Upphaf þessarar keðju er hugsjón og um það að færa þreyttum eiginkonum ævarandi sáluhjálp og hamingju.

Ólíkt flestum öðrum keðjum kostar þessi ekkert, eða enga peninga.

Þú sendir einfaldlega eintak af þessu bréfi til vinkvenna þinna (giftra) sem sitja í sömu súpunni og þú.

Síðan pakkarðu manninum þínum inn og sendir hann til þeirrar konu sem er efst á listanum og bætir þínu nafni neðst á listann.

Þegar nafnið þitt er komið efst á listann þá munt þú  fá 500 karlmenn senda heim til þín og sumir munu vera algjört æði.

Þú verður að hafa trú á keðjunni.

Ein kona fékk manninn sinn sendann til baka. Láttu það ekki henda þig.

Með vinkonu kveðju.

 

P.S 

Þegar þetta bréf er ritað, hafði ein vinkvenna minna fengið 377 karlmenn. Hún var jarðsett í gær og það tók 7 líksnyrtimenn, 36 klst. að ná brosinu af andliti hennar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Ætlar þú að skila kveðju til Ómars frá mér,þú getur sagt honum að ég hafi aldrei haft það eins gott og í dag,og ég sjái sko ekki eftir að hafa flutt.Kv Valdi

þorvaldur Hermannsson, 11.5.2009 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband