Elskulegi eiginmaður..gullkorn

ÓmarsmyndirÍ ljósi þess að þú ert eiginmaður minn, langar mig að beina orðum mínum til þín.

 

þú mátt vita að þú ert ljós lífs míns alltaf og ætíð.

Þú mátt vita að þú ert það besta sem hefur nokkru sinni orðið á vegi mínum.

Þú mátt vita að hver sorg þín og áþján er einnig mín.

Þú mátt vita að gleði þín og kæti er einnig mín.

Þú mátt vita að ef þú ert einmana og þrúgaður er ég það einnig.

Þú mátt vita að ef þú ert þreyttur og argur, verð ég það einnig.

Þú mátt vita að ef þú ert vansæll, er ég það einnig.

Þú mátt vita að ef þú elskar mig, þá elska ég þig af allri sálu minni og af öllum mætti mínum.

Þú mátt vita að ef þú skilur mig einhverntíma eftir eina hér á jörð, veslast ég upp, því andi minn verður frá mér tekinn.

Þú mátt vita að sérhvert andartak sem við upplifum saman, er eilíft.

Þú mátt vita að hver einasta minning um samveru okkar hér á jörð, er eilíf.

Þú mátt vita að ávextir okkar gerir okkur eilíf og minningarnar 

lifandi í brjóstum okkar eftirlifandi.

Þú mátt vita að ef ég fer á undan þér þá bið ég þig að vera góðan mann 

alltaf og ætíð ,eins og þú hefur verið.

Þú mátt vita að ef þú stendur eftir án mín, vona ég að ég hafi skilið eftir rúm í hjarta þínu sem verður ætíð ætlað mér.

Þú mátt vita að ef þú fellir tár vegna mín, mun ég koma og þerra þau og hugga þig

þar til sál þinni er svalað að eilífu.

(Höfundur Kolbrún Harpa)

 

 flott


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið ofboðslega er þetta fallegt. Hafðu hjartans þökk fyrir, kæra vinkona.

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 11:38

2 Smámynd: Kolbrún Harpa Vatnsdal  Kolbeinsdóttir

Takk fyrir Ásdís mín. Jú þetta er rétt hjá þér og síðasta blómið er minn elskaði

Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 27.5.2009 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband