27.5.2009 | 07:39
Blómin mín ..gullkorn
Ég á þrjú blóm, alveg sérstök eintök.
Hvert með sínum lit, fegurð og blæbrigðum.
Eintök sem ég ræktaði og gaf líf.
Eintök sem ég hef horft á vaxa og dafna
og verða fegurri með hverjum degi sem líður.
Þessi sérstöku blóm eiga eitt framyfir önnur blóm
þau lifa lengur.
Svo fremi að illgresi nái ekki að festast í rótum þeirra, skemma eða jafnvel deyða.
Eins og önnur blóm, þurfa þau hlýju, ástúð og mikla umönnun.
Annars fölna þau og beygja höfuð sitt uns þau hafa verið vökvuð á réttan hátt.
Fyrsta blómið mitt var einnig mín fyrsta gleði, þá lærði ég að sjá um eitthvað
sem skipti máli.
Sjá það smám saman breytast og vaxa og verða að hávöxnu,fögru og litríku blómi.
Krónur þess orkuðu á mig sem tónlist, því sífellt bættust við ný laufblöð.
uns það gaf af sér tvo gullfallega afleggjara sem eiga eftir að vaxa og dafna.
Verða að fögrum blómum sem gleðja augað mitt um ókomin ár.
Annað blómið mitt hefur á stundum átt erfitt með að festa rætur.
En með með örlítilli þolinmæði og umburðarlyndi verður hægt að koma því til.
Því það býr yfir mikilli fegurð, þegar loks allir knúmparnir springa út.
Kannski á það eftir að bera af öðrum blómum.
Ég reyni að vökva það eftir bestu getu en það virðist ekki átta sig á þessum höndum
sem hafa reynt að græða moldina. En ég veit það tekst á endanum og það verður
önnur mesta gleði mín.
Þriðja blómið mitt er svolítið fjölskrúðugt, andstæðurnar í litum þess gefa tilefni
til að með tímanum verði það litríkt og komi til með að veita hverju auga gleði,
sem sér það með augum þess er skilur dýpstu litbrigði náttúrunnar.
Fyrir nokkrum árum síðan sá ég blóm sem hafði verið án alls þess sem ég
hafði gefið blómunum mínum.
Enginn hugsaði um það, enginn hlúði að því svo ég stal blóminu.
Með natni tók ég moldina sem umlukti ræturnar og varfærnislega setti ég nýja
mold sem var full af þeim bætiefnum sem viðkvæmar ræturnar þurftu á að halda.
Með ástúð reyndi ég að hlúa að blóminu en allt hafði visnað.
Ég vökvaði, talaði og færði það nær heitum sólargeislanum.
Loks komu fyrstu grænu angarnir ég horfði á það smám saman breytast
yfir í þéttlaufgað blóm en enn þá vantaði að knúmparnir spryngi út.
Svo dag einn var sá fyrsti útsprunginn, svo annar og annar, koll af kolli.
Hlýjir mjúkir litirnir á blóminu glöddu mig svo hjarta mitt söng.
Ég hafði vakið þetta blóm til lífsins og það var kraftaverk.
(Höfundur Kolbrún Harpa gamalt og endurbætt)
Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Facebook
Athugasemdir
Og þetta er líka alveg dásamlega yndisleg færsla. Ég geri mér grein fyrir því að þú ert að tala um börnin þín og er það alveg dýrðlegt hvernig þú líkir þeim við blóm, sem vaxa og dafna.
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 11:42
Takk fyrir Ásdís mín..þetta er rétt hjá þér og síðasta blómið er minn elskaði
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 27.5.2009 kl. 12:25
hvernig er það eiginlega, er ég bara einhver arfi eða hvað? hvar kem ég inn í myndina? eru ekki bara Helena og Írena og svo Ómar í garðinum þínum? ;)
Dabbi (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 15:52
Davíð minn...þú þarft að lesa þetta betur þar sem stendur annað blómið mitt sem ert þú
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 28.5.2009 kl. 22:56
Hvaða blóm er eg þá ? fyrst að Davíð er nr 2 ég hélt nefnilega að ég væri númer 2 átti allaveganna við um mig fyrir svona 2 arum !!!!
Írena Lilja Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 11:02
Helena var fyrsta blómið. Davíð númer tvö í röðinni og þú Írena mín númer þrjú. Þið voruð svo ung þegar ég gerði þessa myndlíkingu. En síðasta og jafnframt fjórða blómið sem ég svo stal er auðvitað minn ektaspúsi og sú myndlíking er ný
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 31.5.2009 kl. 17:52
hehe oky núna mín skilja
Írena Lilja Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 21:27
Eruð þið ekki að grínast í mér ????? Hvernig er ekki hægt að skilja þessa myndlíkingar ???????
Heyrðu mamma....bíddu ef Dabbi er nr 2 og Rena nr 3 hvað er ég þá ?????????????? Er ég fjórða blómið ??? Eða er ég kannski bara moldin ?? Var pabbi ekki örugglega þarna fyrsta blómið ??? Og hvað með vorlaukana..hvar fitta þeir inn í myndina. Vissu bragðlaukarnir að lúpínan missti af strætó þegar blóm fimm, sex og sjö áttu að sjá um árshátíðina hjá velunnurum sólarinnar? Ég var heldur ekkert hissa að heyra að Baldursbráin hafi tekið Gleymméreina með sér því það var ekki séns að hún næði að halda ein á blómum átta og níu. Sem er auðvitað ekkert skrítið þar sem þau eru auðvitað bara stjúpbörnin þín !!!!
Mamma mín vertu ekkert að flækja þetta í framtíðinni fyrir flækjufótunum systkinum mínum. Gefðu þeim þetta bara með teskeið eins og þú hefur alltaf gert ;)
Helena, 11.6.2009 kl. 17:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.