Gamlir vinir

Davíð og Gunnar GeirÞarna á gamalli mynd í helgarblaði föstudaginn 26.júni(vantar ártalið) sem ég fann í gullkistunni minni eru Davíð sonur minn og Gunnar Geir félagi hans og vinur til margra ára. Og þar sem textinn sést illa eftir skönnunina hjá mér skrifa ég hann:

Fyrirsögn: Gott að vera í Eyjum

"Við erum að vinna hjá bænum á morgnana. Við vorum svo seinir að

spyrjast fyrir um vinnu að það var búið að ráða í störfin", sögðu þeir félagar og frændur Sveinn Davíð Pálsson og Gunnar Geir Stefánsson .

Þeir höfðu reynt fyrir sér með veiðistengurnar í sjónum við nýja hraunið en höfðu lítið upp úr krafsinu að eigin sögn. Aðspurðir sögðu þeir að það væri mjög gaman að búa í Eyjum og þá sérstaklega fyrir náttúruunnendur eins og þá.

Í næsta mánuði fara þeir út í Bjarnarey til lundaveiða. Eyjan mun vera 164 metrar yfir sjávarmáli þar sem hún rís hæst.

í ágúst tekur svo við sjálf þjóðhátíðin þeirra Vestmannaeyinga og "þá verður gaman".

Þeir voru ekkert sérstaklega ginnkeyptir fyrir höfuðborgarsvæðinu að öðru leyti en því að það var hægt að kaupa meira en í Eyjum.

Fyrir utan leik og störf sögðust þeir fara í bæinn til að kíkja á liðið eða þá þeir tækju myndband á leigu til að horfa á.

Sveinn Davíð og Gunnar Geir eru báðir á fullu í handboltanum á veturna og voru bjartsýnir á gengi þeirra manna á Íslandsmótinu í vetur. Eins og kunnugt er komust Eyjamenn í úrslitakeppnina á síðasta móti og slógu þar út KA en urðu að lúta í lægra haldi fyrir FH.

 

Ps. Fyrir neðan myndina stendur: Gunnar Geir Stefánsson og Sveinn Davíð Pálsson á góðri stund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband