23.8.2009 | 05:28
Tár í ........
Munið þið, sem lesið mig eftir þessu ljóði: "Tár í tómið" sem Ríó Tríó söng á sínum tíma og ég held að ég muni textann eins og hann á að vera. En ef einhver man hann betur en ég,endilega setja hann rétt inn fyrir mig. Svona man ég hann:
Báru þig meyjar um bölsins haf
brotið hvert skip sem þér lífið gaf..
uns eiturbylgjan við auðnaland
að endingu grefur þitt lík í sand...
Ó..öll mín tár tár
til einskis þau í tómið renna
Mín ör og sár
til einskis lifa þau og brenna
en verst er þó
að vit'ei hverju, er um að kenna....
Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Facebook
Athugasemdir
Fann textann fyrir þig mother dearest
Tár í tómið
Bárur þér fleygja um bölsins haf.
Brostið hvert skip sem þér lífið gaf.
uns eiturbylgjan við auðnar land,
Að endingu grefur þitt lík í sand.
Við áttum drauma og ást og trú.
En eitthvað brást og þú reikar nú
um villustræti um voðans borg.
Það er verra en dauði og þyngra en sorg.
Og öll mín tár,
til einskis þau í tómið renna.
Mín ör og sár,
til einskis svíða þau og brenna.
En verst er þó að vita’ei hverju’er um að kenna.
Þú grætur oft en ég get svo fátt.
Ég gef þér allt, það er samt of smátt.
Eitrið þig bindur í báða skó
og blóð þitt hrópar, fær aldrei nóg
Þeir hirða þig stundum og hringja í mig
og heimta’að ég komi að sækja þig.
Þú ert örvita af kvölum og allt mitt þor.
Mín orka og líf fer í þessi spor.
Og öll mín tár, til einskis þau í tómið renna.
Mín ör og sár, til einskis svíða þau og brenna.
En verst er þó að vita’ei hverju’er um að kenna.
Á sjúkrahús fórst og send varst heim.
Þeir sögðu þig fríska við trúðum þeim.
Þú hlóst og söngst en þú hlærð ei meir.
Það hryggir ei neitt eins og von sem deyr.
Bárur þér fleygja um bölsins haf.
Brostið hvert skip sem þér lífið gaf
uns eiturbylgjan við auðnarland.
Að endingu grefur þitt lík í sand.
Og öll mín tár, til einskis þau í tómið renna.
Mín ör og sár, til einskis svíða þau og brenna.
En verst er þó að vita’ei hverju’er um að kenna.
Helena (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 17:35
Ps...smá info--> Textinn var ortur af föður sem átti dóttur er haldin var eiturlyfjafíkn.
Helena (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 17:37
Takk Helena mín...skil ekki hvað þetta er búið að söngla í ausnum á mér í tíma og ótíma. Og já, ég vissi um hvað var verið að yrkja en var búin að steyngleyma hversu langt þetta ljóð er....
takk aftur
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 24.8.2009 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.