24.9.2009 | 08:52
Skamm..skamm
Jæja ætli það fari ekki að koma tími á að fara að krota eitthvað hérna hvað úr hverju.
Sólin farin að lækka á lofti og rökkrið smýgur inn fyrr en ella.
Mér líkar vel skammdegið og kveiki á kertum og tendra alla lampa í kotinu. Þá fer maður að kafa ofaní gullkistuna og sjá hvað dettur upp í hendurnar á manni og hvort megi nota það hér á síðunni. Kannski maður skoði þetta um helgina....spáir rigningu og þá er upplagt að setjast við skriftir....
Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Facebook
Athugasemdir
Sæl Harpa, en hvað þú ert jákvæð, mér finnst skammdegið nefnilega rómantískt og notalegt.
Kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 29.9.2009 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.