3.10.2009 | 06:04
Textar....hversu fallegir...:)
Alltaf skal maður vakna á frídögum jafnt sem venjulegum, á óguðlegum tíma eins og segir einhversstaðar. Sérstaklega þegar maður er kominn á vissan aldur, er mér sagt. Þá skiptir ekki máli hvaða vikudagur það er. En ég sé eitt gott í því...dagurinn verður lengri hjá mér en kannski öðrum fyrir vikið. og þar sem ég er morgunhani og bestu tímar dagsins fyrir mér er fyrriparturinn..líkar mér það ekki svo illa...
En stundum væri nú alveg í lagi að getað sofið "aðeins" lengur...þá hugsa ég ,ef það er helgarfrí..."jú ,ég get alltaf skellt mér aftur uppí og hallað mér smástund aftur"...og sú tilhugsun er góð...
Mér er hugsað til hinna ýmsu texta við hin ýmsustu lög enda er ég ljóða og lagahöfundur sjálf. Hversu afar ólík við erum.Enda væri ekki til sá urmull texta eða ljóða eða laga sem til eru í dag..og það er gott. Helena dóttir mín bjó til myndband fyrir þó nokkru síðan reyndar tvö, sérstaklega fyrir mig.
Annað eru hennar samantekt til mín og hitt annars vegar... í minningu mömmu minnar.
þau eru bæði hægt að skoða hér til vinstri á síðunni minni. í mynd og við lög.
Við erum ekki ennþá búnar að koma okkar lögum að svo hún notaði einstaklega falleg lög við bæði myndböndin..sem passa svo vel við,..
Hér er textinn við lagið.... myndbandið sem hún setti inn í minningu mömmu..
Guð þig leiði sérhvert sinn
sólarvegi alla
verndarengill varstu minn
vissir mína galla.
Hvar sem ég um foldu fer
finn ég návist þína
Aldrei skal úr minni mér
mamma ég þér týna..
Yndislegur texti og fallega sungið...

Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 06:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.