Og ramminn datt af veggnum með látum...

Iss..hvað mér brá núna í morgunsárið meðan ég sat við tölvuna með rjúkandi  nýlagað kaffið og sötraði á því í rólegheitum. Heyrði eitthvað óhljóð fyrir aftan mig og eitthvað datt með skelli í gólfið.

Á gólfinu lá lítill myndarammi sem innihélt fallegt gullkorn,glerið hafði brotnað eða réttara sagt brestir þvers og kruss í glerinu.  Þetta gullkorn er eftirfarandi: "Mamma er konan sem heldur í hendina á manni fyrstu árin en hjartað alla ævi". Voru þetta einhver skilaboð til mín?

Var ég kannski að bregðast einhverjum sem vildi minna á sig.. hmmm..kannski gefandanum?

Ekkert barnanna minn hafði gefið mér  gullkornið forðum svo óneytanlega hugsaði ég til gefandans og tilefnið að þessari gjöf. Kannski var ég ekki að gera ymsa hluti á réttan veg..kannski var þetta áminning um að snúa mér að þessari manneskju og hlúa að henni betur en ég hef gert undanfarið.

Allt þetta, kannski...kannski. Eða kannski datt myndin bara af veggnum vegna þess að kennaratyggjóið sem hélt henni gaf sig á endanum. Er meira að hallast að þeirri skýringu. Því hvað börnin mín varðar er þetta gullkorn í fullu gildi og ekkert  það til sem ég myndi ekki reyna að gera til að hjálpa ef á reynir. Þannig heldur maður í hjarta þeirra, leiðir og verndar eins lengi og manni er mögulegt.

því i hjartanu eru þau og verða alltaf börnin þín hvað sem á gengur í þeirra lífi og ert tilbúinn að vaða eld og brennistein til að greiða götu þeirra svo þeim líði vel.

Ef illa gengur þá kemur þú inn og hjálpar þeim að feta veginn og þegar þú telur óhætt að losa um höndina þá fylgistu með úr fjarlægð og vonar allt það besta og trúir að nú geti þau spjarað sig án þín en ert alltaf tilbúin ef fjöll fara að rísa og hamarinn virðist ókleyfur í augum þeirra. 

Þá kemur þú og bendir á aðrar leiðir framhjá þessu háa fjalli og visar veginn. Því ekkert fjall er svo óyfirstíganlegt í þínum augum og engin urð er svo grítt að ekki megi tipla milli steina til að finna aðrar og betri leiðir þegar öll sund virðast lokuð.

bleik

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband