26.12.2009 | 09:33
Rólegheita jól :)
Það eru óvanalega róleg jól í Kollukoti þetta árið.Við aðeins þrjú ásamt hundunum okkar. Við breyttum út af hefðinni á aðfangadag og skelltum okkur í kirkju klukkan sex. Auðvitað var allt gert klárt áður en við fórum, svínahamborgarahryggurinn beið spenntur eftir okkur í ofninum, sósan klár og lofaði bragðlaukunum alsælu og bara eftir að brúna kartöflurnar þegar heim kæmi.
Athöfnin var yndisleg og ekki i mjög föstum skorðum en söngurinn var ljúfur og fyllti eyrun. Og í lokin var tendrað á kertum sem hver og einn hélt á og sunginn sálmurinn sífagri Heims um ból. Ég söng með af innlifun enda þessi stund einstök og mín fyrsta upplifun í kirkju á þessum degi.
Við fórum út í kirkjugarð eftir athöfnina með friðarkerti og tendruðum ljós á leiðum ástvina okkar. kyrrðin og fegurðin fyllti hjörtun friði. Garðurinn var fagur yfir að líta það loguðu kerti á hverju einasta leiði. En það verður að segjast að það var ansi kalt og ég held að við dóttir mín höfum aldrei á æfinni verið eins fljótar heim sem er sem betur fer stutt frá garðinum. Við hlupum á háhæluðum stígvélunum eins hratt og við komumst í hálkunni og kuldanum sem beit í kinnarnar og eyrun. Og heim, inn í hlýjuna og anganina af steikinni í ofninum.
Við settumst að borðum um hálf átta leytið og það var ekkert stress í gangi, afslappað og yndælt borðhald. Öðruvísi mér áður brá er allt var á fúll sving hér í kotinu og spennan vaxandi að taka upp pakkana og lesa jólakortin. Nú allt í einu lá bara ekkert á og öllu var tekið með stóískri ró fullorðna fólksins. eða þar til ég undirrituð fékk að lesa utan á pakkana sem ég hafði ekki gert í fjölda mörg ár og mér sagt hægversklega að slaka aðeins á..að ég væri ekkert betri en krakkarnir forðum...hahahaha..
Svo það er greinilegt að maður getur misst sig í þessu og skiptir engu máli á hvaða aldri maður er ætli jólabarnið í mér hafi ekki bara vaknað á þessari stundu er ég fékk loksins tækifæri að útdeila pökkunum hahahaha.......
Það var auðvitað ekkert slakað á, gúffað í sig konfekti og is og nefndu það bara. Enda fékk ég að kenna á því um klukkan þrjú um nóttina. Vaknaði við þennan líka brjóstsviða og þurfti að fara niður og jafna mig smá tíma. En sem betur fer átti ég eina töflu við svona löguðu og gat loksins sofnað aftur. Maður ætlar aldrei að læra ....
Jóladagur var yndislegur í alla staði og auðvitað haldið í hefðina með hangikjöti sem smakkaðist vel. Svo er jólakaffið í dag annan í jólum hjá stór fjölskyldunni. Núna verður fjörið haldið heima hjá Marý systur minni í aðeins stærra húsnæði . Í fyrra var jólakaffið hér í Kollukoti og þrátt fyrir mikil þrengsli var hver millimeter nýttur og það var bæði setið og staðið og ég gat ekki betur séð að fólkið væri bara ánægt og léti sér þetta í léttu rúmi liggja enda segir einhversstaðar "Þröngt mega sáttir sitja" ......nærveran var meiri og mikið spjallað. Við í Kollukoti ætlum að enda kvöldið í kvöld með að fara til Helenu og Geirs að spila og það verður ábyggilega bara gaman..
Nú svo styttist óðfluga í áramótin og þá borðum við saman, við úr Kollukoti og fjölskyldan á Smáró einhvern dýrindis kalkún a la mý og Helena eldar léttreyktan lambahamborgara handa þeim sem ekki borða fuglinn. Vonandi verður veður gott um áramótin svo maður geti notið flugeldanna sem fegra himininn og gleðja augað....eigið gleðilegar stundir sem eftir lifir árs..
Með von um betri tíð og blóm í haga...

Flokkur: DAGBÓKIN MÍN | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.