Færsluflokkur: DAGBÓKIN MÍN
23.8.2009 | 07:44
Taktu á móti mér þegar.....
Elísabet Sigríður Friðriksdóttir In memoriam/ í minningu hennar.
Fædd 02.10 1905/ látin 21.04 1985
Grafin við hlið afa míns og eiginmanns hennar Sigurjóns Halldórssonar í Fossvogskirkjugarði í Kópavogi.
Skrifað 1985 eftir hennar fráfall af mér sonardóttur hennar sem dvaldi öll sumur hjá henni frá 5 ára aldri til 11 ára aldurs ef ekki aðeins lengur .
Og skrifin eru þau nákvæmlegu sömu og engu breytt frá því þau voru rituð í fyrsta skipti:
í þína minningu elsku amma mín...
Öll elskum við einhvern eða þykir óstjórnlega vænt um einstaka persónu í lífi okkar. Mig langar til að segja frá ömmu minni. Ég átti tvær, einstaklega góðar ömmur en önnur þeirra átti svo sterk ítök í mér allt frá barnsaldri og ég sakna hennar mikið síðan hún dó. Ég sjálf á heima í kaupstað við sjávarsíðuna en amma mín bjó fyrir sunnan eins og það er kallað.
Allt frá 5 ára aldri til 11 ára aldurs fór ég til hennar á hverju einasta sumri. Hún var yndisleg manneskja, brosmild, lágvaxin með kolsvart hár sem hún greiddi alltaf upp. Hún átti ellefu börn sem öll eru lifandi enn þann dag í dag .
Þessi amma mín var dugnaðarforkur. ein af þessum ömmum sem aldrei féll verk úr hendi,ein af þessum ömmum sem alltaf var að baka. Það var sannarlega freistandi fyrir litla telpu að koma í eldhúsið hennar ömmu til að fá nýbakaðar kleinur og nýlagað kaffi. Enda bjó hún til þær bestu kleinur sem ég hef smakkað á æfi minni.Ég held að ég hafi verið tólf eða þrettán ára þegar amma fluttist í borgina en þá hafði hún misst eiginmann sinn úr heilablóðfalli. Hann var fluttur til Kaupmannahafnar en hann lést eftir stutta legu.
Nú var hún orðin ekkja í stórborginni Reykjavík. Þar eignaðist hún íbúð á Bergþórugötunni í þrílyfti gömlu húsi á fyrstu hæðinni. Húsið var svo sem ekki upp á marga fiska en íbúðin...heimilið sem sem hún útbjó, var bæði skrautlegt og síðast en ekki síst....hlýlegt.
Þar fann maður sig svo innilega velkomin . Hún var ekta blómakona, allt lifði og dafnaði í höndum þessarar konu.
Allt sem hún tók sér fyrir hendur var gert af nýtni og sparsemi, en fyrst og fremst af kærleika.
Allir voru velkomnir í íbúðina hennar ömmu og ég get sagt ykkur að það var oft þröngt á þingi og þá sérstaklega síðasta virka dag hverrar viku er börn og barnabörn fóru í innkaupaleiðangur fyrir helgina, en þá var alltaf komið við á Bergþórugötunni í kaffisopa......
það stóð ekki á þeirri gömlu, vitandi af komu þyrstra og hungraðra...dró hún fram dýrindis bakkelsi og rjúkandi kaffi og passaði alltaf vel uppá að allir fengju nóg.
það var reyndar heldur lítill vandi, því hún bakaði svo einstaklega góðar kökur .
Í öll þau skipti sem ég eða mitt fólk átti leið í borgina, tók hún alltaf svo vel á móti okkur. Og ég verð að segja að það eru fáir sem engir henni líkir.....
Mágkona mín hafði á orði eftir að hafa komið í heimsókn með mér " Mikið lifandi er þessi kona yndisleg, hún er svona...ekta amma..." Og þar var ég henni hjartanlega sammála....
Svo liðu árin og ég fór sjaldnar til borgarinnar nema í einhverjum ákveðnum erindagjörðum...þar sem ég þurfti að fljúga á milli..
Amma flutti á Vitastíginn. Hún fór þangað ekki mjög fús en hún flæmdist í burtu af Bergþórugötunni vegna leigjandans á eftri hæðinni.
Gömul kona á ekki til endalausa þolinmæði gagnvart illgjörnu og tilllitslausu fólki svo hún ákvað að færa sig um set.
Húsið á Vitastígnum var enn eldra hús að sjá...með bröttum stiga uppá efstu hæð en þar varð síðasta heimili hennar elsku ömmu minnar.
Einhvern veginn fékk ég það á tilfinninguna að henni liði ekki of vel á þessum nýja stað. Samt útbjó hún þetta nýja heimili sitt af sömu alúð og hlýju sem alltaf áður. Ég held að hún hafi aldrei fundið sig þarna og ég veit að það var ekki eins fjölmennt sem oftast er hún bjó á Bergþórugötunni.....
Mér fannst eins og amma hefði misst mikið af sjálfri sér er hún neyddist til að flytja búferlum á Vitastíginn.
Enda varð svo að hún bjó ekki lengi á þessum stað. Ég fékk símhringingu um að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús. Það kom upp úr kafinu að hún var með æxli í höfðinu og það leið ekki langur tími þar til hún kvaddi þennan heim.......
Nú var þessi yndislega kona horfin sjónum en hún lifði sterkt í huga mér.
Það var komið að jarðarförinni. Ég kveið alltaf fyrir jarðarförum, samt veit ég ekki hvers vegna og reyndi að komast hjá að fara í jarðarfarir ef ég gat mögulega komist hjá því.
Ég er afar viðkvæm gagnvart þessum athöfnum og finnst kannski einhver skömm af því að gráta fyrir framan aðra. En af hverju ætti maður að skammast sín? í kirkjunni er einmitt sá staður þar sem maður má og getur úthelt hjarta sínu en kannski er maður oft að harka af sér..annarra vegna en grætur svo í einrúmi þegar enginn sér...
Við barnabörnin hennar ömmu..þau elstu sex... fengum þann heiður að vera líkmenn...þrjár kvenkyns og þrír karlkyns. Ég var elsta barnabarnið hennar og ég var glöð í sorgmæddu hjarta mínu að fá að bera mína elskuðu ömmu síðasta spölinn.
Við sátum hljóð í sætum okkar í kirkjunni. Kistan var fagurlega skreytt blómum.
Þarna lá hún hún amma mín..sú besta manneskja sem ég hafði kynnst á lífsleiðinni og ég vissi líka að henni þótti mikið vænt um mig. Enda lét hún mig alltaf finna það allan tímann er leiðir okkar lágu saman.
Hvað mig langaði að gráta sem ég sat þarna á bekknum. Það var stór kökkur í hálsinum á mér og hjarta mitt var að springa af sorg og söknuði eftir þessari manneskju sem hafði verið mér svo góð......
Ég fékk reyndar heillaráð áður en ég fór til kirkju " Þú þarft ekki að gráta þessa konu..hugsaðu heldur um allt sem þessi kona var"...jú það var mikið til í því.
Einmitt þess vegna var ég að springa..einmitt vegna þess ,sem hún var..þess vegna syrgði ég hana elsku ömmu mína og grét....
Ég bar henni kveðjur frá móður minni í hljóði en móðir mín og faðir voru skilin mörgum árum áður. en ég veit að móður minni þótti mikið vænt um gömlu konuna.....
Athöfnin byrjaði og auðvitað var ekkert nema gott um þessa einstöku manneskju að segja, sem lá þarna í fagurlega skreyttri kistunni...bíðandi eftir að fá hinstu hvíld við hlið eiginmanns sín og afa míns...
Við barnabörnin stóðum við sitthvora hlið kistunnar og hægum skrefum bárum við ömmu okkar elskuðu, eftir kirkjugólfinu, út fyrir, niður tröppurnar og síðan inn í likbílinn sem ók ofurhægt á leiðarenda.....
Og við syrgjendur á eftir..þögull hópur eftirlifenda.
Kistan var lögð ofan á gröfina og við gengum hvert fyrir sig og signdum yfir kistuna.
" Vertu sæl, elsku amma mín .... Viltu, þegar ég fer héðan einhvern tíma...viltu þá taka á móti mér"
Guð varðveiti þig elsku amma mín..ég skal aldrei gleyma þér .....
Þessar hugsanir og óskir flugu gegn um huga minn er ég stóð við gröf ömmu minnar þennan minnisstæða dag og kvaddi hana í hinsta sinn
Síðan eru liðin mörg ár...en í þau skipti sem ég fer "suður"
er efst í huga mér KONAN BROSMILDA...SMÁVAXNA MEÐ SVARTA HÁRIÐ sem bjó á Bergþórugötunni ..því þar hafði hún lagt sál sína í að gera heimili sitt opið okkur öllum...sem þótti svo undur vænt um hana..
Guð blessi minningu þína elsku amma mín... og takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og gerðir mig að betri manneskju fyrir það eitt að fá að ferðast með þér meðan þú lifðir....þú átt hjartA MITT AÐ EILIFU....
23.8.2009 | 05:28
Tár í ........
Munið þið, sem lesið mig eftir þessu ljóði: "Tár í tómið" sem Ríó Tríó söng á sínum tíma og ég held að ég muni textann eins og hann á að vera. En ef einhver man hann betur en ég,endilega setja hann rétt inn fyrir mig. Svona man ég hann:
Báru þig meyjar um bölsins haf
brotið hvert skip sem þér lífið gaf..
uns eiturbylgjan við auðnaland
að endingu grefur þitt lík í sand...
Ó..öll mín tár tár
til einskis þau í tómið renna
Mín ör og sár
til einskis lifa þau og brenna
en verst er þó
að vit'ei hverju, er um að kenna....
21.8.2009 | 18:21
Gleðin og sorgin...
Gleðin og sorgin eru systur. Þær ganga saman og eyða tímanum saman á hverjum degi. Milli þeirra er afar þunnur og næstum ósýnilegur strengur svo hárfínn að stundum verðum við ekki vör við þegar við stígum óvart á þennan fína streng. Hann brestur og þá tekur við..annaðhvort sorgin eða gleðin. Við grátum stundum af gleði en gráturinn verður sárari þegar systir sorg ákveður að banka á dyrnar. Höfum þetta alltaf bak við eyrað og reynum að valda engum sorg vísvitandi heldur reyna að hlægja með lífinu sem er oft erfitt en léttir aðeins ,við gleði og hlátur....
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 23.8.2009 kl. 05:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2009 | 19:58
Security guard....
1.8.2009 | 20:33
Fjör á Þjóðhátíð.... ;)
Helga Björk...pínu alvarleg á svip..
Ása skvísa á leiðinni í Dalinn í gærkvöldi....
Sunna litla......
Þarna dvöldum við...fjölskyldan..
Heiða á ekki til eitt móment sem er ekki grín og gaman...yndislega skemmtileg stelpa ....
Þessi drengur er frá Hornafirði og tengdasonur minn hann Geir sá aumur yfir honum og dró hann inn í tjald. Þarna er Anna systir með honum..
Ása að stríða mínum..okkur fannst hann líta út eins og Aríes litli tjúinn okkar ...hahhahaha..
Hvar er fegurra en í Herjólfsdal..
30.7.2009 | 23:22
Gleðilega Þjóðhátíð kæru Eyjamenn og konur......;)


Fyrsta Þjóðhátiðin hennar Sunnu Emilý. Þarna er hún með mömmu sinni henni Ásu Sóley að setja niður tjaldsúlurnar...
Ohhhh..ég er svoooo...sterk...næstum eins og pabbi...
Við erum tilbúnar í fjörið...
systurnar Helena og Írena við tjöldun í dag...í yndislegu veðri..
The skvæses...Inga með tengdadótturina og inn á milli þeirra sést í Hermann og Daða tengdason minn..
Tjaldið virtist allt í einu ekki að passa við súlurnar ...allt of stutt....þá er bara að MASS'etta......
Minn ektaskekti heldur súlunum uppi að því er virðist...hahhahahhaha... Matsjóó...man.. ;)
Þegar hlutirnir klikka...þá er kallað á þá sem kunna að taka á því....
Blóð ...sviti ....og ...tár....svona á Þjóðhátíð að vera strákar...
25.7.2009 | 01:50
Í minningu allra mæðra sem eru farnar.....
sólarvegi alla.
Verndaengill varstu minn
vissir mína galla....
Hvar sem ég um foldu fer
finn ég návist þína.
Aldrei skal úr minni mér
Mamma, ég þér týna....
(flutt af G..kórnum) lagið er í heild sinni við myndband v/megin á síðunni minni ;)
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 26.9.2009 kl. 04:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2009 | 11:19
Spegilbrot..leikur að mynd :)
16.7.2009 | 09:24
Minningarbrot :)
Ég og Davíð minn á fermingardaginn hans
Systkinin Helena og Davíð heima á Illugagötu..
Við systurnar, líklega í fjölskyldugrilli.
Frá vinstri: Ég, Anna, Marý og Inga...
Þríburarnir: Guðrún Fjóla, Marý Ólöf og Anna Ísfold..
Fjórir ættliðir: Mamma, Amma, ég og Helena mín..en auðvitað hefur ættin vaxið síðan þessi mynd var tekin..
16.7.2009 | 09:17