Færsluflokkur: DAGBÓKIN MÍN

Og ramminn datt af veggnum með látum...

Iss..hvað mér brá núna í morgunsárið meðan ég sat við tölvuna með rjúkandi  nýlagað kaffið og sötraði á því í rólegheitum. Heyrði eitthvað óhljóð fyrir aftan mig og eitthvað datt með skelli í gólfið.

Á gólfinu lá lítill myndarammi sem innihélt fallegt gullkorn,glerið hafði brotnað eða réttara sagt brestir þvers og kruss í glerinu.  Þetta gullkorn er eftirfarandi: "Mamma er konan sem heldur í hendina á manni fyrstu árin en hjartað alla ævi". Voru þetta einhver skilaboð til mín?

Var ég kannski að bregðast einhverjum sem vildi minna á sig.. hmmm..kannski gefandanum?

Ekkert barnanna minn hafði gefið mér  gullkornið forðum svo óneytanlega hugsaði ég til gefandans og tilefnið að þessari gjöf. Kannski var ég ekki að gera ymsa hluti á réttan veg..kannski var þetta áminning um að snúa mér að þessari manneskju og hlúa að henni betur en ég hef gert undanfarið.

Allt þetta, kannski...kannski. Eða kannski datt myndin bara af veggnum vegna þess að kennaratyggjóið sem hélt henni gaf sig á endanum. Er meira að hallast að þeirri skýringu. Því hvað börnin mín varðar er þetta gullkorn í fullu gildi og ekkert  það til sem ég myndi ekki reyna að gera til að hjálpa ef á reynir. Þannig heldur maður í hjarta þeirra, leiðir og verndar eins lengi og manni er mögulegt.

því i hjartanu eru þau og verða alltaf börnin þín hvað sem á gengur í þeirra lífi og ert tilbúinn að vaða eld og brennistein til að greiða götu þeirra svo þeim líði vel.

Ef illa gengur þá kemur þú inn og hjálpar þeim að feta veginn og þegar þú telur óhætt að losa um höndina þá fylgistu með úr fjarlægð og vonar allt það besta og trúir að nú geti þau spjarað sig án þín en ert alltaf tilbúin ef fjöll fara að rísa og hamarinn virðist ókleyfur í augum þeirra. 

Þá kemur þú og bendir á aðrar leiðir framhjá þessu háa fjalli og visar veginn. Því ekkert fjall er svo óyfirstíganlegt í þínum augum og engin urð er svo grítt að ekki megi tipla milli steina til að finna aðrar og betri leiðir þegar öll sund virðast lokuð.

bleik

Þá eru bara alveg að koma jól....

Þegar margt er að gerast í kring um mann gleymir maður hvað dagarnir eru fljótir að líða. Á morgunn er 1 des og ég er auðvitað löngu búin að setja upp jólaseríur innandyra. Ekki veitir af í þessu blessaða skammdegi að leyfa fallegum bjarmanum af jólaljósunum fylla andann og leyfa sér að hlakka til jólanna og samverunnar með fjölskyldumeðlimum. Að vísu verðu margt breytt þessi jól en þannig er bara lífið. það tekur breytingum og maður samlagar sig að breyttum aðstæðum. Allavega verður eitthvað færra í hópnum þessi jólin.

því verður ekki neitað að vinna er búin að vera frekar stopul hjá því fyrirtæki sem ég er að vinna hjá og ekki gott svona mitt í öllu jólaumstanginu. En það verður bara að hafa það  ekki satt, en auðvitað hefur það áhrif á jólagjafakaup og annað sem jólunum fylgir. Samt er ég staðráðin í að eiga gleðileg jól með þeim sem hjá okkur verða og að þeir fjölskyldumeðlimir sem verða annarsstaðar þessi jól eigi einnig gleðilega hátíð framundann.

Ég er búin að vera ansi löt að setja hér inn á síðuna mína en ætla að reyna að gera eitthvað í því Wink

enda oft búin að skamma sjálfa mig fyrir það Tounge Annars vona ég að heyra frá ykkur sem hafið skrifað til mín og ég skal reyna að standa mig. Megi ykkur öllum líða vel. Kær kveðja Grin


Systur.....

Systurnar frá Vatnsdal. Dúdda, mamma, Edda og Hulda Sigurðardætur..InLove Dúdda frænkaMamma í rauðum kjólLinda og EddaHulda

Textar....hversu fallegir...:)

Alltaf skal maður vakna á frídögum jafnt sem venjulegum, á óguðlegum tíma eins og segir einhversstaðar. Sérstaklega þegar maður er kominn á vissan aldur, er mér sagt. Þá skiptir ekki máli hvaða vikudagur það er. En ég sé eitt gott í því...dagurinn verður lengri hjá mér en kannski öðrum fyrir vikið. og þar sem ég er morgunhani og bestu tímar dagsins fyrir mér er fyrriparturinn..líkar mér það ekki svo illa...Wink

En stundum væri nú alveg í lagi að getað sofið "aðeins" lengur...þá hugsa ég ,ef það er helgarfrí..."jú ,ég get alltaf skellt mér aftur uppí og hallað mér smástund aftur"...og sú tilhugsun er góð...Grin

Mér er hugsað til hinna ýmsu texta við hin ýmsustu lög enda er ég ljóða og lagahöfundur sjálf. Hversu afar ólík við erum.Enda væri ekki til sá urmull texta eða ljóða eða laga sem til eru í dag..og það er gott. Helena dóttir mín bjó til myndband fyrir  þó nokkru síðan  reyndar tvö, sérstaklega fyrir mig.

Annað eru hennar samantekt til mín og hitt annars vegar... í minningu mömmu minnar. 

þau eru bæði hægt að skoða hér til vinstri á síðunni minni. í mynd og við lög.

Við erum ekki ennþá búnar að koma okkar lögum að svo hún notaði einstaklega falleg lög við bæði myndböndin..sem passa svo vel við,..InLove

Hér er textinn við lagið.... myndbandið sem hún setti inn í minningu mömmu..Heart

 

Guð þig leiði sérhvert sinn

sólarvegi alla 

verndarengill varstu minn

vissir mína galla.

Hvar sem ég um foldu fer

finn ég návist þína

Aldrei skal úr minni mér

mamma ég þér týna.. 

 

Yndislegur texti og fallega sungið...InLove 

Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal

 


Skamm..skamm

Jæja ætli það fari ekki að koma tími á að fara að krota eitthvað hérna hvað úr hverju.

Sólin farin að lækka á lofti og rökkrið smýgur inn fyrr en ella.

Mér líkar vel skammdegið og kveiki á kertum og tendra alla lampa í kotinu. Þá fer maður að kafa ofaní gullkistuna og sjá hvað dettur upp í hendurnar á manni og hvort megi nota það hér á síðunni. Kannski maður skoði þetta um helgina....spáir rigningu og þá er upplagt að setjast við skriftir....Wink

sólarlag


Munum eftir þeim sem unnum okkur...:)

 

Vertu alltaf góður drengur

ljúfur eins þú ert í dag.

sama hvernig lífið gengur

lát það verða þér í hag ...

(ljóð :Haraldur þorkelsson frá Björk í Vestmannaeyjum)

Tileinkað:Davíð syni mínum,sem honum þótti svo undurvænt um..InLove

Á þessari mynd er Davíð líklega 5 ára ....

 

Davíð í gula gallanum


Sigga frá Vatnsdal.

sigga i rammaÞessi mynd var send mér frá Huldu frá Vatnsdal yngstu systur móður minnar.Á að giska um tvitugt.

Mikið finnst mér Drifa Huldudóttir lik móður minni elskuðu..Heart 


Ljósmyndarinn

Maðurinn minn hefur yndi af að taka ljósmyndir og ekki þykir honum leiðinlegt að leika sér aðeins með myndefnið  eins og sést hérna.

Hérna er hann búinn að búa til annað eintak af mér og kallar 

myndina Kolla og Harpa......Grin hahhahaha..Kolla og Harpa


Hahahahaha... einu sinni var....;)

Já..já þetta er ég sjálf..aðeins 17 ára skvísa...Tounge

Dagurinn hennar mömmu er í dag

Sigga frá VatnsdalMamma hefði orðið 77 ára  í dag ef hún hefði lifað.

Blessuð sé minning þín mamma mín...Heart

" aldrei skal úr minni mér...mamma ég þér týna"

Takk fyrir allt og allt ...... HeartHeartHeartHeart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband