Færsluflokkur: DAGBÓKIN MÍN
17.6.2009 | 06:32
Fleiri Sunnumyndir...:
17.6.2009 | 06:29
Litli sólargeislinn hún Sunna á pallinum í Kollukoti...:)
Litla Sunna Emilý
á pallinum heima hjá ömmu og afa á Sjómannadaginn.
Litla skottan undi sér vel í sólskininu.
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 06:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2009 | 07:43
Gamlir vinir
Þarna á gamalli mynd í helgarblaði föstudaginn 26.júni(vantar ártalið) sem ég fann í gullkistunni minni eru Davíð sonur minn og Gunnar Geir félagi hans og vinur til margra ára. Og þar sem textinn sést illa eftir skönnunina hjá mér skrifa ég hann:
Fyrirsögn: Gott að vera í Eyjum
"Við erum að vinna hjá bænum á morgnana. Við vorum svo seinir að
spyrjast fyrir um vinnu að það var búið að ráða í störfin", sögðu þeir félagar og frændur Sveinn Davíð Pálsson og Gunnar Geir Stefánsson .
Þeir höfðu reynt fyrir sér með veiðistengurnar í sjónum við nýja hraunið en höfðu lítið upp úr krafsinu að eigin sögn. Aðspurðir sögðu þeir að það væri mjög gaman að búa í Eyjum og þá sérstaklega fyrir náttúruunnendur eins og þá.
Í næsta mánuði fara þeir út í Bjarnarey til lundaveiða. Eyjan mun vera 164 metrar yfir sjávarmáli þar sem hún rís hæst.
í ágúst tekur svo við sjálf þjóðhátíðin þeirra Vestmannaeyinga og "þá verður gaman".
Þeir voru ekkert sérstaklega ginnkeyptir fyrir höfuðborgarsvæðinu að öðru leyti en því að það var hægt að kaupa meira en í Eyjum.
Fyrir utan leik og störf sögðust þeir fara í bæinn til að kíkja á liðið eða þá þeir tækju myndband á leigu til að horfa á.
Sveinn Davíð og Gunnar Geir eru báðir á fullu í handboltanum á veturna og voru bjartsýnir á gengi þeirra manna á Íslandsmótinu í vetur. Eins og kunnugt er komust Eyjamenn í úrslitakeppnina á síðasta móti og slógu þar út KA en urðu að lúta í lægra haldi fyrir FH.
Ps. Fyrir neðan myndina stendur: Gunnar Geir Stefánsson og Sveinn Davíð Pálsson á góðri stund.
15.6.2009 | 09:58
Atriði úr James Bond ?
11.6.2009 | 16:34
Bakkafjörufararnir.......
Þau skelltu sér öll, föstudaginn 5.júní s.l til að skoða framkvæmdirnar í Bakkafjöru. En ljósmyndari var Ómar Eðvaldsson og auðvitað var Diesel með í för...og langfyrstur hunda til að kíkja á þetta allt saman ;)
11.6.2009 | 12:42
Ömmurnar mínar elskulegu :)
11.6.2009 | 12:34
Myndirnar hennar Helenu :)
11.6.2009 | 12:27
Eitt og annað...
27.5.2009 | 07:39
Blómin mín ..gullkorn
Ég á þrjú blóm, alveg sérstök eintök.
Hvert með sínum lit, fegurð og blæbrigðum.
Eintök sem ég ræktaði og gaf líf.
Eintök sem ég hef horft á vaxa og dafna
og verða fegurri með hverjum degi sem líður.
Þessi sérstöku blóm eiga eitt framyfir önnur blóm
þau lifa lengur.
Svo fremi að illgresi nái ekki að festast í rótum þeirra, skemma eða jafnvel deyða.
Eins og önnur blóm, þurfa þau hlýju, ástúð og mikla umönnun.
Annars fölna þau og beygja höfuð sitt uns þau hafa verið vökvuð á réttan hátt.
Fyrsta blómið mitt var einnig mín fyrsta gleði, þá lærði ég að sjá um eitthvað
sem skipti máli.
Sjá það smám saman breytast og vaxa og verða að hávöxnu,fögru og litríku blómi.
Krónur þess orkuðu á mig sem tónlist, því sífellt bættust við ný laufblöð.
uns það gaf af sér tvo gullfallega afleggjara sem eiga eftir að vaxa og dafna.
Verða að fögrum blómum sem gleðja augað mitt um ókomin ár.
Annað blómið mitt hefur á stundum átt erfitt með að festa rætur.
En með með örlítilli þolinmæði og umburðarlyndi verður hægt að koma því til.
Því það býr yfir mikilli fegurð, þegar loks allir knúmparnir springa út.
Kannski á það eftir að bera af öðrum blómum.
Ég reyni að vökva það eftir bestu getu en það virðist ekki átta sig á þessum höndum
sem hafa reynt að græða moldina. En ég veit það tekst á endanum og það verður
önnur mesta gleði mín.
Þriðja blómið mitt er svolítið fjölskrúðugt, andstæðurnar í litum þess gefa tilefni
til að með tímanum verði það litríkt og komi til með að veita hverju auga gleði,
sem sér það með augum þess er skilur dýpstu litbrigði náttúrunnar.
Fyrir nokkrum árum síðan sá ég blóm sem hafði verið án alls þess sem ég
hafði gefið blómunum mínum.
Enginn hugsaði um það, enginn hlúði að því svo ég stal blóminu.
Með natni tók ég moldina sem umlukti ræturnar og varfærnislega setti ég nýja
mold sem var full af þeim bætiefnum sem viðkvæmar ræturnar þurftu á að halda.
Með ástúð reyndi ég að hlúa að blóminu en allt hafði visnað.
Ég vökvaði, talaði og færði það nær heitum sólargeislanum.
Loks komu fyrstu grænu angarnir ég horfði á það smám saman breytast
yfir í þéttlaufgað blóm en enn þá vantaði að knúmparnir spryngi út.
Svo dag einn var sá fyrsti útsprunginn, svo annar og annar, koll af kolli.
Hlýjir mjúkir litirnir á blóminu glöddu mig svo hjarta mitt söng.
Ég hafði vakið þetta blóm til lífsins og það var kraftaverk.
(Höfundur Kolbrún Harpa gamalt og endurbætt)
27.5.2009 | 06:51
Elskulegi eiginmaður..gullkorn
Í ljósi þess að þú ert eiginmaður minn, langar mig að beina orðum mínum til þín.
þú mátt vita að þú ert ljós lífs míns alltaf og ætíð.
Þú mátt vita að þú ert það besta sem hefur nokkru sinni orðið á vegi mínum.
Þú mátt vita að hver sorg þín og áþján er einnig mín.
Þú mátt vita að gleði þín og kæti er einnig mín.
Þú mátt vita að ef þú ert einmana og þrúgaður er ég það einnig.
Þú mátt vita að ef þú ert þreyttur og argur, verð ég það einnig.
Þú mátt vita að ef þú ert vansæll, er ég það einnig.
Þú mátt vita að ef þú elskar mig, þá elska ég þig af allri sálu minni og af öllum mætti mínum.
Þú mátt vita að ef þú skilur mig einhverntíma eftir eina hér á jörð, veslast ég upp, því andi minn verður frá mér tekinn.
Þú mátt vita að sérhvert andartak sem við upplifum saman, er eilíft.
Þú mátt vita að hver einasta minning um samveru okkar hér á jörð, er eilíf.
Þú mátt vita að ávextir okkar gerir okkur eilíf og minningarnar
lifandi í brjóstum okkar eftirlifandi.
Þú mátt vita að ef ég fer á undan þér þá bið ég þig að vera góðan mann
alltaf og ætíð ,eins og þú hefur verið.
Þú mátt vita að ef þú stendur eftir án mín, vona ég að ég hafi skilið eftir rúm í hjarta þínu sem verður ætíð ætlað mér.
Þú mátt vita að ef þú fellir tár vegna mín, mun ég koma og þerra þau og hugga þig
þar til sál þinni er svalað að eilífu.
(Höfundur Kolbrún Harpa)
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 19.6.2011 kl. 04:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)