Færsluflokkur: DAGBÓKIN MÍN
27.5.2009 | 06:12
Aðeins smá meira mont :)


DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 06:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2009 | 08:09
Útvegsrekstrarfræðingurinn
25.5.2009 | 09:54
Ótrúlegt sjónarspil náttúrunnar
Þegar sólin er að færa sig í átt til sólseturs koma fram hinir óendanlegu fögru litir náttúrunnar. Giltir sólargeislar falla á útsogið og myndar gull og glit
Ómarsmyndir
Náttúrufegurðin er ólýsanleg oft á tíðum hér í Eyjum.
Það er sem glitri gull og silfur allt í senn
í undrun og lotning á mynd þá horfa menn
það listaverk er fegurst allra listaverka hér
af öllum öðrum myndum sólin ber.
(úr ljóði mínu)
Ómarsmyndir
25.5.2009 | 09:43
Gaman í Spröngunni
24.5.2009 | 06:48
Gleðidagur í Kollukoti
Aldeilis frábærar fréttir af drengnum mínum honum Davíð.
Hann var að útskrifast í gær laugardaginn 23 maí sem Útvegsrekstrarfræðingur. Og ekki nóg með það hann fékk verðlaun fyrir bestan heildarárangur í rekstrar og sjávarútvegsfræðum frá Landsambandi Íslenskra Útvegsmanna og fékk stóra Atlasinn að gjöf.
Stórglæsilegt..og ég er svo montin af honum.
Og í dag verður úskriftarveisla í Kollukoti í faðmi innsta kjarna fjölskyldunnar..yndislegt
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 25.5.2009 kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.5.2009 | 07:57
Mikil gleði :)
Mikil gleði ríkti í Kollukoti í gærkvöldi og eins og sjá má af myndinni af minni yngstu...sumri ..blómum og einlægri sigurgleði ringdi yfir okkur í mörgum skömmtum og frá þjóðum sem við hingað til höfum ekki fengið stig frá ...bara gaman..
Góður matur og mikið nammi í eftirrétt hhahhhah.... :)
Til hamingju Ísland með þennan glæsilega árangur í gærkvöldi:)
5.5.2009 | 06:49
Smá grín í formi keðjubréfs....
Upphaf þessarar keðju er hugsjón og um það að færa þreyttum eiginkonum ævarandi sáluhjálp og hamingju.
Ólíkt flestum öðrum keðjum kostar þessi ekkert, eða enga peninga.
Þú sendir einfaldlega eintak af þessu bréfi til vinkvenna þinna (giftra) sem sitja í sömu súpunni og þú.
Síðan pakkarðu manninum þínum inn og sendir hann til þeirrar konu sem er efst á listanum og bætir þínu nafni neðst á listann.
Þegar nafnið þitt er komið efst á listann þá munt þú fá 500 karlmenn senda heim til þín og sumir munu vera algjört æði.
Þú verður að hafa trú á keðjunni.
Ein kona fékk manninn sinn sendann til baka. Láttu það ekki henda þig.
Með vinkonu kveðju.
P.S
Þegar þetta bréf er ritað, hafði ein vinkvenna minna fengið 377 karlmenn. Hún var jarðsett í gær og það tók 7 líksnyrtimenn, 36 klst. að ná brosinu af andliti hennar.
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 06:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.5.2009 | 14:45
Góðar minningar :)
Þennan mann þarf varla að kynna til sögunnar en samt má segja frá því að hann heldur á Írenu Lilju, barnabarni sínu og dóttur minni sem í dag er orðin 21árs.
Og ég á bara góðar og skemmtilega minningar um hann Súlla og hversu einstaklega barngóður hann var enda var hann eldri börnunum mínum Helenu og Davíð sem afi og sóttist Davíð, sérstaklega eftir að umgangast hann eins oft og mögulegt var.
Enda held ég að Davíð minn sæki ævintýramennskuna og allt úteyjarlífið til hans.Því Súlli var náttúrubarn og ævintýramaður af guðs náð.
Hann var sögumaður hinn skemmtilegasti og hver og einn þagnaði er hann hlustaði á gamla manninn. Fróður maður með eindæmum.
Blessuð sé þín minning Súlli minn
1.5.2009 | 09:25
Elsku vina mín
Elsku hjartans mamma mín...hve sárt ég sakna þín
þú ert svo,nálægt mér..á þessari stundu
Guð á helgum himni.....Mamma...hve sárt ég sakna ég þín
vina mín..á margri gleðistundu.....
Í hvert sinn er ég heyri..gleði og hlátrasköll
ég lít í kring um mig og leyta að þér
Því sérhver gleðihlátur,. er sem ljúfust vetrarmjöll
þetta er eitthvað, sem að þú barst... með þér....
Þú ert mér elsku mamma....svo dýrmæt vina mín
ég elska að hugsa til þín alla daga
Ég elska tilvist þín... elsku mamma mín
ég þrái faðm þinn hlýjan..... alla daga
Tilvist þín er heilög og mín ást til þín
ég sakna þín og vil helst fá þig aftur
Ég veit, þig hitti þig seinna ....elsku mamma mín
og þá getum faðmast aftur, aftur..aftur...
Ég veit samt ég hef misst þig..allavega um stund
og eflaust sjáumst..ekki...um langan...tíma
en elsku góða mamma, er ég tek minn, góða blund
ég vakna ..kannski seint.......um sumartíma

Mamma mín Móðir sex dætra og eins sonar. Hún var aðeins 59 ára þegar hún lést. Átti stuttan..... allt of stuttan búskap með Bigga stjúpa frá Sólheimum en þau héldu heimili að Illugagötu 79.... Mamma var frá Vatnsdal, dóttir Sigurðar Högnasonar og Ingibjargar Ólafsdóttur frá Vik í Mýrdal....... Við erum sex systurnar og einn bróðir sem hún fæddi af sér þessi eðalkona.Ég elst f: 54 .....svo komu ÞRÍBURAR f: 55.... svo Inga 2 árum seinna f:57'...Elfa Sigurjóna f: 63' Surtsey...Kolbeinn Freyr..f:73' Heimaeyjargosið eða í Keflavíkþað sama ár.... Ég sakna hennar á hverjum degi þessarar elskulegu konu...

Blessuð sé minning þín elsku mamma mín... Þín Harpa
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 1.1.2011 kl. 07:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2009 | 15:52
Dagurinn í gær :)
Mikið var dagurinn í gær yndislegur í alla staði.
Og ég lýg því ekki að hitamælirinn var næstum tuttugu gráður.
Og það var yndislegt að setjast hérna út á pall með
nýlagað kaffi og ilmandi ristað brauð...
Hlusta á Lóuna í fjarska og aðra fugla sumarsins syngja
fyrir mig. Hundarnir makinduðu sig í sólinni og leið
augsýnilega vel ...eins og mér. Kannski veit þetta á gott sumar þegar sólin fer að klífa hærra og setjast enn seinna og slær roðagulli á fjöll og tinda og kyssir okkur góða nótt.
Og eins þegar hún vekur okkur snemma morguns og bíður okkur góðan dag í allri sinni fegurð.
Það er svo sannarlega þakkarvert að eiga heima á þessum fallega stað sem Heimaey er og fá
að njóta þessarar margbreytilegu náttúrufegurðar sem hún hefur uppá að bjóða.
Erindi úr einu ljóða minna Óskasteinninn:
Svo dýrmæt gjöf sem eyja..eyja þessi er
svo fagrar hennar björtu sumarnætur.
Atlantshafsins eðalsteinn...eðalsteinn hún er
í hjörtum okkar festir djúpar rætur.
Megum við njóta fleirri svona daga
Kærar kveðjur úr Kollukoti
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)