28.9.2008 | 09:23
Hörpuljóð
Brostu gegnum tárin.
Brostu
gegnum tárin
þó eflist hjarta sárin
þó allt á móti blási
þá brostu bara á móti
þó engist þú
af hjartasorg
þá ber þær raunir
ei á torg
brostu
og sjá
hvað skeður
gleðstu
og leiðinn kveður
Ef sorgin
gegn um andlit skín
brostu
og sjáðu
hve hún dvín.
Gráttu aðeins
er þú ert ein
ef aðrir sjá
þá stattu bein
En láttu
táraflóðið renna
ef þér finnst lífið
sárt og brenna
beið um hjálp
og finndu mig
ég skal brosa
fyrir þig.
Því þegar eitthvað
bjátar á
getum við ekki
komist hjá
að leita hjálpar
öðrum frá.
að gráta sárt
og finna til
finnast sér ekkert
verða í vil
sjá aðeins
inn í tómið svart
sjá draga skugga
yfir allt
sem áður fyrr
var bjart.
Þá þyngir yfir
hverri sál
þá finnst oss lífið
aðeins prjál
enginn gleðst
og enginn hlær
enginn
er okkur
hjartakær
en brostu samt
í mótbyr þeim
sem við bjóðum
ávalt heim
þótt harmþrunginn
þú sért í dag
þá brostu samt
og gleðstu í dag.
ljóð K.H.K maí´77)
Athugasemdir
Sæl Harpa, mikið eru þetta falleg ljóð hjá þér, kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 28.9.2008 kl. 23:46
Mamma þú ert náttúrulega bara Hreinasti Snillingur þegar kemur að Ljóðagerð alltaf kemur þetta frá innstu rótum hjartans enda ertu Yndislegasta Og Hlýjasta Manneskja í Heimi Elska þig Ástarkveðja Frá Álftanesi
Írena Lilja (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 20:17
Ástarþakkir fyrir falleg orð
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 1.10.2008 kl. 05:43
Þetta er rosalega vel gert hjá þér mamma eins og oft áður. Og góð áminning á þessum tímum sem við erum að upplifa í dag....
Helena, 6.10.2008 kl. 16:15
Veistu það að það borgar sig hundraðfalt að reyna allavega að brosa þó svo manni sé ekki hlátur í huga...kannski færðu eitt undurfagurt bros á móti sem lyftir sálinni og gleður þó svo það sé ekki nema andartak....
Kolbrún Harpa Vatnsdal Kolbeinsdóttir, 6.10.2008 kl. 17:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.