24.11.2008 | 11:26
Notaleg helgi
Húsbandið mitt fór með hrakfallabálkinn..mig.. upp á ísland um helgina. Við dvöldumst í Hveragerði í litlum dúllulegum sumarbústað. Þetta var bara ósköp notalegt allt saman.
Auðvitað var kíkt aðeins í borgina en ég verð að segja að oft hefur maður séð fleirri á ferðinni í þessum stórmagasínum. Maður gat bara dúllað sér í rólegheitum án þess að rekast utan í allt og alla.
Ég þarf víst að fara í sjúkraþjálfun á þriðjudaginn og láta pína mig aðeins. Annars er ég miklu betri í handleggnum svo þetta tekur vonandi styttri tíma að verða eins og splunkuný
Svo fer að styttast í að krakkarnir komi og eyði jólunum og áramótunum hjá okkur hér í Eyjum og ég fæ að knúsa litlu elskuna mína hana Sunnu Emilí....
20.11.2008 | 07:25
Snillingurinn ég......
Ég hlýt að vera með vængi....því ekkert brotnaði þegar ég húrraði niður stiga sem ég og önnur kona vorum að þrífa í vinnunni á miðvikudaginn. En ég meiddi mig nú samt og tognaði í vinstri öxlinni og fékk risastóra kúlu og ljótt mar á lærið. Enda var það vinstri hliðin sem sem fékk höggið niður stigann
Nóttina á eftir var ég með óþægilega verki. Svo úr varð að hitta lækni sem lét röntgenmynda mig en sem betur fer eins og ég sagði..óbrotin En það verða ekki nein not af mér í vinnu næstu dagana svo mín er bara heima með höndina í falla. En þar sem ég er óþægur sjúklingur að upplagi verð ég að gera eitthvað með þeirri hendinni sem er í lagi enda þrjósk fram úr hófi. Enda ætla ég mér ekki að vera svona hálf eitthvað....ef ég fæ einhverju ráðið
Kannski er ég umvafin englum
16.11.2008 | 05:19
Umvafin englum......
Það er ekki oft sem eitthvað lag eða söngvari heillar mann gjörsamlega upp úr skónum, svo þú færð tár í augun eða jafnvel gæsahúð við að hlusta á.
Lagið, Umvafin englum sem Guðrún Gunnarsdóttir syngur er hrein perla og söngurinn hennar Guðrúnar er svo fagur að unun er á að hlusta. Hún hefur svo tæra og tilfinningríka rödd sem hæfir þessu lagi svo vel að maður hreinlega fær tár í augun og ljóðið er alveg hreint yndislegt..innihaldsríkt og passar kannsi sérstaklega við í dag.....
Ég vil endilega koma því áfram til ykkar að hlusta á þetta fallega lag hennar í góðu næði og dvelja smástund með henni og leyfa tónunum og ljóðinu að fylla eyru ykkar og taka á móti þeim boðskap sem fellst í þessum söng.
Settu endilega á þig headfón og komdu þér vel fyrir..lokaðu augunum og hlustaðu og þá skilurðu hvað ég er að tala um.
þvílíkur snillingur sem hún er sem söngkona,hún er með söngrödd sem er hrein og tær eins og fegursti demantur.
Það var verið að gefa þetta lag út á nýjum diski en ég hef reyndar ekki heyrt fleirri lög af honum og eitthvað segir mér að það sé þess virði að eignast hann og hlusta á hann, með þessa söngkonu um borð.......
6.11.2008 | 08:17
Það styttist í jólin.........
Jólabarnið í mér er að vakna til lífsins. Mikið er það notaleg tilhugsun að eiga þau ekki langt undan.
Svo maður verður að biðja betri helminginn að skrönglast upp á háaloft og finna gersemarnar sem tilheyra jólunum...yndislegt Börnin mín elska þessa tíma og hlakka alltaf jafn mikið til.
Birtan af þessum fallegu ljósum sem lýsa skammdegið eru hreint ómetanleg...það verður allt svo ævintýralegt og fallegt og manni líður einhvernveginn öðruvísi ..svona..notalega ef ég get einhvernveginn útskýrt það. Yngsta mín er þegar búin að tilkynna komu sína um jólin og vill dvelja hjá okkur gamla settinu enda segist hún elska jólamatinn hennar mömmu sinnar Svo við verðum ekki alveg alein um jólin enda hefur svo ekki verið undanfarin jól. Þetta er yndislegur tími með fjölskyldunni.
Ætli maður smelli sér bara ekki í þetta um helgina...hengja upp jólagardínur og fleira skemmtilegt.
Jólin..jólin ..jólin koma senn
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.11.2008 | 06:51
Frábær dagur..frábært kvöld...
Við vorum búin að ákveða grillkvöld......minn angi úr fjölskyldunni...og þetta var hreint frábært í alla staði. Hulda mín og hennar elskulega yngsta.. Mínir allir......eins og þeir lögðu sig. Góður matur og vín....og í smá stund gleymdum við öllu sem á undan er gengið..þó vissulega í upphafi höfðu skapast fjörlegar umræður um lífið og tilveruna í dag.
Það var svo gaman og allir tilbúnir að eiga góða stund..enda var það þannig. Krakkarnir mínir höfðu mjög gaman af að gera grín í þeirri gömlu(mér) og hló ég ekki síður og var komin með magakrampa eftir hláturinn. Enda hafði ég ekki minnstu hugmynd um hversu áhugaverður og eftirminnanlegur karakter ég er víst í þeirra augum.. enda er tengdadóttir mín búin að panta að leika mig í bíómynd.. og það er bara frábært.ha..ha ha.... ég skemmti mér allavega konunglega og þau ekki síður...mikið hlegið og sungið.
Ég þarf höfund af ljóði sem var víst ort til einstaklega góðrar persónu sem við í minni fjölskyldu þekkjum vel og hann er á þessa leið:
Mannstu fyrsta kvöldið.
þegar kynntist ég þér fyrst
kalt var bæði í hjarta mínu og sál
Við höfðum eitt sinn áður
einhversstaðar hittst
í æsku.....þegar brautin var svo hál.
Minninguna mun ég geyma..meðan andann dreg
mannstu þegar koss á vörum brann
Þú ein ert yndisleg..þig eina þrái ég
í þínum örmum hamingjuna fann...
Þarna var einhver rosalega ástfanginn að yrkja til sinnar blómarósar yndislegt ljóð í alla staði og við erum gjörsamlega að deyja úr forvitni..hver??...Og höfum gert í mörg ár..
Takk fyrir yndislegt og skemmtileg kvöld elskurnar mínar..samveruna..grínið og gamanið ég sé að ég á ómetanlega gullkistu af góðu fólki ...enn og aftur..ástarþakkir
N.b. Móðir mín var gleðigjafi og spilaði á gítar og söng og þannig fékk ég þetta gen hennar til mín og hef getað komið því áfram.....
Í hennar minningu..
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2008 | 17:19
Fiskinn minn..nammi..nammi....nammmm
Alla malla..hvað maður getur orðið þreyttur eftir 11 til 12 tíma vinnu þessa vikuna og auðvitað á bankastjóralaunum ha..ha
Svo ég hafi það bara á hreinu er ég með í dagvinnulaun kr.860,85 og yfirvinnan er kr.1.549,60 og þá getur hver reiknað það út að ég er allvega heilt ár að vinna fyrir bankastjóralaununum títtnefndu
oh my goood...hvað er ég eiginlega að gera við líf mitt? Áður var ég að vinna sem verslunarmaður frá 9-18 og var með minni tekjur en ég er með í dag..útborgaðar þ.e eftir skattinn elskulega..
Reyndar er þetta lengri vinnutími....og hvað með það...!
Í dag er ég að vinna við það verðmætasta sem við eigum í dag og það er fiskurinn...og ég er stolt af því að afla tekna fyrir okkar þjóð en vissulega mætti þessi atvinnugrein vera betur borguð og það vita allir og þarf ekki að tíunda það hér og vona innilega þegar ákveðnir aðilar átta sig á því fyrr en seinna hvað við erum að gera fyrir þjóðfélagið að það borgi sig að greiða okkur hærri laun því peningarinr eru ekki búnir til í bankanum eins og svo margir landsmenn hafa haldið..hingað til
En svo bara nenni ég ekki að tala meira um þetta hel....rugl og ætla bara að slappa af og fá mér eitthvað gott í gogginn og svo annað til að renna því niður
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.10.2008 | 05:49
Mín bæn er sú...
Kæri minn hvar sem þú ert og mér var kennt að trúa á ...hvar ertu núna þegar ég þarf virkilega á þér að halda...af hverju ertu ekki í kallfæri ...akkúrat núna?
Hvar ertu...Þegar þú ert kallaður inn....af heilli þjóð sem þú vonandi elskar af öllu þínu hjarta..af allri þinni sálu...af öllum þínum mætti......
Minn kæri..hvar ertu núna...? Ég á erfitt með að sofa heilan svefn eins og svo margir aðrir..
ég veit að ég er ekki ein..en hvar ertu??
Hjálpaðu mér eins og svo mörgum öðrum að eignast hugarró......Þó ekki væri nema smá stund......ég sofna og vakna en of stutt..ég hvílist...en ekki nema í smá stund.......mér finnst ég stundum svo úthvíld er ég vakna af stuttum svefni..en þa
Ég held að ég sé að leggjast í hýði og vilji bara sofa og vakna þegar þetta er allt yfirstaðið,líklega er þetta svona þessa stundina hjá mörgum.....
Hvar eru mamma og pabbi sem smurðu sárin er þau voru sem verst....margir eiga þau að....enn í dag sem betur fer...Ég vil verða aftur barnið sem þurfti ekki að hafa áhyggjur .....sem lék sér fram á nótt í sakleysi og kom inn þreytt eftir leiki dagsins í franskbrauð og kakó og mjúkan koss frá elsku mömmu minni...ég vil verða aftur barnið....áhyggjulausa......og láta pabba og mömmu um allt.....
En það er ekki þannig lengur ..nú er það bara kaldur veruleikinn sem blasir við og hvergi hægt að fela sig fyrir honum...Og ofan á allt eru tveir aðilar í fjölskyldu minni fárveikir. Fyrstan að telja er hann faðir minn sem er með krabbamein og er í geislameðferð þessa dagana en lætur bara þokkalega vel að sér.....allavega var það þannig er ég talaði við hann í gærkvöldi.....en hann býr í Vogum á Vatnsleysuströnd ásamt sinni seinni konu..... alveg hreint yndælis manneskja í alla staði.
í annan stað er næst yngsta systir mín með sama sjúkdóm og móðir mín blessuð var með...nú þarf hún virkilega á nýrnagjafa að halda og helst sem allra fyrst....brátt fer að styttast í að hún þarf að fara í blóðskilun á Landspítalann því nýrun hennar starfa orðið svo illa. Ef við miðum við 100% þá er starfsemin komin niður í c.a 15%..... og þá telst hún vera komin í það að kalla til nýrnagjafa....þvílíkt rugl..af hverju að bíða svona lengi og sjá manneskjuna verða veikari og veikari..
hefði haldið að því styrkari sem manneskjan er því fljótari yrði hún að ná sér eftir slíkan fluttning. Þetta eru svo kölluð blöðrunýru...sem þýðir ....í stuttu máli.....að nýrun eru þakin blöðrum sem hefta starfsemi þeirra og leggjast einnig á lifur og aðra staði í líkamanum.Og því miður er þessi sjúkdómur arfgengur og er hún systir mín næst yngsta ásamt þeirri allra yngstu systur okkar og bróðir eru með þennan sjúkdóm..
Og ekki þarf að spyrja að því að það hafa uppgötvast fleiri tifelli þessa sjúkdóms innan þeirra fjölskyldu....því miður er það þannig að þeir aðilar fjölskyldunnar sem eru með þennan sjúkdóm bera hann til barna sinna og því miður er staðreyndin þannig í dag. Og minni líkur á að við sem ekki erum með þennan sjúkdóm berum hann til barna okkar..En vissulega getur orðið stökkbreyting.Og ekki er æskilegt að manneskja sem er með þennan sjúkdóm standi í barneignum því barneignir gera sjúkdóminn ennþá erfiðari fyrir vikið og flýta fyrir ferlinu en þetta vissum við ekki.....fyrr en eftir að móðir okkar lést og var haldinn fjölskyldufundur heima hjá stjúpa eftir hennar andlát með hennar nýrnasérfræðingi .
Og ég get rétt ýmindað mér að elsku systir mín sem var og hugsaði um móður okkar meira og minna sé ekkert allt of bjartsýn á framtíðina en því fleiri sem gerast nýrnagjafar því betra. Ég er í B rh d+ blóðflokki og get því miður ekki gefið henni annað nýrað mitt því hún er í þessum algenga blóðflokki O og sú eina sem hefur boðið henni nýrnagjöf er ein af þríbura systrum okkar
Ein þeirra er með sykursýki svo ekki er hægt að fá frá henni....Sú allra yngsta fædd með Surtsey er með sjúkdóminn og
Þetta er fyrsta hjálp...að leita innan fjölskyldunnar og svo líffæragjafabankar annað úrræði en þá þarf að vera að allt passi við viðkomandi..blóðflokkur og svo önnur smáatriði. En auðvitað getur þetta líka gerst innan fjölskyldunnar að ýmsir þættir nýrnagjafans passi ekki við hana þó svo viðkomandi nýrnagjafi sé í sama blóðflokki það reyndi virkilega á þennan þátt varðandi mömmu á sínum tíma að ein af systrum okkar var að mati sérfræðinga hennar......ekta kandidat til líffæraflutnings....en þegar til kom erlendis ...... að sérfræðilegum athugunum hefði mamma hafnað nýra hennar svo hún varð að bíða eftir kalli erlendis frá sem og gekk eftir á þeim tíma...hún lést eftir að uppgötvaðist að gamla nýrað sem var skilið eftir í líkama hennar eftir aðgerðina ...sýktist og dró hana til dauða...og ég verð svo hræðilega reið akkúrat núna er ég skrifa þessi orð...
það verður alltaf eftir stóra spurningin...væri hún á lífi í dag ef gamla nýrað hefði verið fjarlægt....þetta kom fram eftir krufningu.. Ég get sagt ykkur eitt kæru lesendur minnar síðu að það tekur alveg rosalega mikið á manneskjuna að fara í blóðskilun....i einfaldri útskýringu er það þannig....að blóðinu þínu er dælt út úr líkamanum og hreinsað og dælt inn aftur......og þetta tekur tíma skal ég segja ykkur.
Mamma mín elskaða þurfti að fara orðið 3 sinnum í viku héðan frá Eyjum í blóðskilun þar til hún fékk nýrnagjafa erlendis frá. Og þökk sé þeim sem skildu aðstæður og gerðu allar hennar götur greiðar á þessu tímabili. Og þessir heiðursmenn eru hann Bragi Ólafson á umdæmisstjóri flugfélagsins hér í Eyjum og einnig Valur Andersen sem sá um sjúkraflug á þeim tíma enn og aftur innilegar þakkir til ykkar.
Að verða nýrnagjafi krefst heilmikils af viðkomandi og aðgerðin er meiri en til viðkomandi nýrnaþega..en ég ætla samt að biðla til ykkar þarna úti að hugsa um þetta og ef þið teljið ykkur líklega nýrnagjafa þá endilega hafið samband við Landspítalann og eða mig og ég kem áfram upplýsingum............svo þið getið fengið þær upplýsingar sem þið þurfið áður en ákvörðun er tekin.
Enda þarf ýmsar rannsóknir til að kanna hvort þú sér líklegur nýrnagjafi svo líkami hennar hafni ekki því nýra sem henni er gefið. Ég vona innilega að það séu einhverjar góðar manneskjur sem eru tilbúnar að gera það sem þarf að gera og helst ekki seinna en strax..því fyrr sem brugðist er við þeim mun betra fyrir hana elsku systur mína því ég vil endilega gera hennar líf sem best ef hægt er en þá þurfum við á ykkur að halda og endilega komið þessari fyrirbæn minni áfram til ykkar lesenda og svo koll af kolli.
Ég veit og þekki ekkert annað en gott af mínum löndum og vil láta reyna á þessa bæn mína til ykkar.....
Að endingu vil ég bara segja...Farið vel með ykkur hvar svo sem á landinu þið búið..."Öll él styttir upp um síðir"..Kolla í Kollukoti
Að vera ..eða ekki vera.....
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 1.1.2011 kl. 07:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2008 | 14:29
Hrukkurnar mínar......
JE..DÚDDA..MÍA...... HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ SKE!
HVERNIG STENDUR EIGINLEGA Á ÞVÍ AÐ ÞÓ MÉR FINNIST ÉG VERA "KORNUNG" ÞÁ SEGIR LÍKAMI MINN.......ALLT ANNAÐ..HA..
ÞAÐ HAFA BÆST VIÐ ÍSKYGGILEGA MARGAR HRUKKUR Á ÝMSA LÍKAMSPARTA SEM VORU EKKI SÝNILEGAR ÁÐUR. ÞÆR BARASTA LÆÐAST AÐ MANNI.... EINS OG ÞJÓFUR Á NÓTTU.
SAMA HVAÐ MAÐUR BER MIKIÐ AF HRUKKUKREMI OG ALLSKONAR KREMUM SEM EIGA AÐ GERA HÚÐINA MJÚKA OG STINNA.
SÉR ER NÚ HVER STINNINGIN............HMM
ENDA ÞEGAR MAÐUR FER AÐ PÆLA Í AUGLÝSINGUNUM UM HRUKKUKREM ERU ÞAÐ ALLTAF UNGAR OG FERSKA KONUR SEM SÝNA NOTKUN KREMSINS. UNGAR KONUR MEÐ STINN BRJÓST LÝTALAUSA HÚÐ.....EINSTAKLEGA FALLEGAR MEÐ GEISLANDI BROS.
ÆTLI MAÐUR HAFI VIRKILEGA..ha.... Í UNDIRMEÐVITUNDINNI TRÚAÐ ÞVÍ ,AÐ MAÐUR MYNDI LÍTA EINS ÚT MEÐ ÞVÍ AÐ BERA Á SIG NÝJASTA NÆTURKREMIÐ FRÁ NIVEA .
OG EKKI MÁ GLEYMA DAGKREMINU SEM GEFUR HÚÐINNI ÞANN RAKA SEM ÞARF.....ISS BARA... MÍN HÚÐ VERÐUR EKKERT STINNARI....HRUKKURNAR ERU ALVEG JAFN MARGAR AÐ MORGNI OG MEIRA SEGJA HAFA BÆST VIÐ FLEIRI YFIR NÓTTINA....ÞANNIG AÐ MAÐUR ER STUNDUM EINS OG STRIKAMERKIÁ MORGNANA..OJ..OJ....
OG ÉG GET SAGT YKKUR AÐ ÞAÐ TEKUR TÖLUVERÐAN TÍMA AÐ SLÉTTAST ÚR ÞEIM OG EKKI ÞÝÐIR EINU SINNI AÐ NOTA GUFUSTRAUJÁRN Á KRUMPURNAR......OG ÉG MEINA ÞAÐ....!
HEFURÐU PRÓFAÐ AÐ HALLA ÞÉR FRAM.... HA? NEI ER ÞAÐ EKKI.. ENDA EINS GOTT.....
ÉG MYNDI BARA SLEPPA ÞVÍ,
ÞVÍ ÞEGAR ÞÚ ERT KOMINN Á VISSAN ALDUR EINS OG UNDIRRITUÐ. ÞÁ ER EINS OG ANDLITIÐ BREYTIST Í EITTHVAÐ ÓÚTSKÝRANLEGT......HÚÐIN FYRIR NEÐAN AUGUN KIPRAST ÖLL SAMAN OG MUNNURINN LAFIR EINS OG VINDBARINN SALTFISKUR OG HVER EINASTA HRUKKA VAKNAR TIL LÍFSINS OG SEGIR... BARASTA GÓÐAN DAGINN...
OG MANNI VERÐUR BARA Á AÐ SPYRJA SJÁLFAN SIG "HVAÐ ER ÞETTA EIGINLEGA". !
OG HVERNIG HALDIÐ AÐ ÞAÐ SÉ FYRIR ELSKUNA AÐ HORFA FRAMAN Í ÞETTA.......OG ÞÁ Í ÁKVEÐINNI STELLINGU OG SJÁ ÞETTA FÉS BLASA VIÐ SÉR Í ALLRI SINNI DÝRÐ .
ÞAÐ ER EKKI AÐ FURÐA AÐ FÓLK LOKI OFT AUGUNUM ÞEGAR ÞAÐ ER AÐ KYSSAST OG FLEIRA.....
EN ÉG ÆTLA EKKERT AÐ FARA AÐ UPPLÝSA HVERNIG ÉG VEIT ÞETTA LEYNDAR MÁL MEÐ ANDLITSSIGIÐ...ÞAÐ VERÐUR HVER AÐ GERA UPP VIÐ SIG.
OG SVO TÓK ÉG EFTIR ÖÐRU......TAKK FYRIR..AÐ EF MAÐUR ER NÚ AÐ KÍKJA AÐEINS Á SIG BERAN FYRIR FRAMAN SPEGILINN OG KANNA ÁSTANDIÐ Á BODDÍINU ÞÁ BATNAR ÞAÐ NÚ EKKI..NEI..NEI. NEMA KANNSKI SVONA VIÐ FYRSTU SÝN. ( ÞÁ HEF ÉG LÍKLEGA GLEYMT AÐ SETJA UPP GLERAUGUN)
ÞÁ VIRÐIST EITT OG ANNAÐ VERA Í ÞOKKALEGU LAGI.
EN SVO VAR MÍN AÐ TEYGJA ÚR SÉR OG ÞÁ HERPTUST RASSKINNARNAR SAMAN OG ÞÁ...JESÚS MINN.... BLASIR BARA EKKI VIÐ MINNI KONU STRIKAMERKTUR RASS OG LEIT UM LEIÐ Út EINS OG NÁLAPÚÐI. ÓKEY..APPELSÍNUHÚÐ......
EF ÞIÐ VILJIÐ HAFA ÞAÐ ÞANNIG. EN ÉG HEF ALDREI ÁÐUR SÉÐ APPELSÍNU MEÐ SEBRARÖNDUM FYRR EN NÚNA. ÞÁ VITIÐ ÞIÐ ÞAÐ.........
EINS OG ÞJÓFUR AÐ NÓTTU MÆTA STRIKAMERKJARARNIR OG KROTA Á MANN MEÐAN MAÐUR SEFUR Í SAKLEYSI SÍNU OG GETUR ENGA BJÖRG SÉR VEITT....................
Á MAÐUR AÐ VERA AÐ VELTA SÉR MEIRA UPP ÚR ÞESSU? ÉG VEIT EKKI.....
JÚ..ÉG VEIT..
ÉG GET AUÐVITAÐ SLEPPT ÞVÍ AÐ SETJA UPP GLERAUGUN HA..HA...
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 19.6.2011 kl. 05:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.10.2008 | 06:36
Gullkistan
Jæja það fer að koma tími á mann að fara að grafa upp gullkistuna og finna eitthvað skemmtilegt að skrifa á þessum síðustu og verstu........ en ég er að fara að vinna klukkan sjö..því hér flæðir fiskur út um hverjar dyr liggur við..þetta er bara eins og á vertíð svei mér þá. En ég skrifa væntanlega eitthvað í kvöld og þá eitthvað sem ég hef verið að bauka með sjálf..ha..ha við heyrumst og bestu kveðjur til ykkar.
Kolla í kollukoti
11.10.2008 | 08:26
Kærar þakkir
Ég vildi bara þakka ykkur öllum fyrir innlitið á síðuna mína frá því hún var opnuð og ekki síst ykkur sem komið inn og hverfið sem hljóðlátur skuggi út úr lífi mínu. Það væri virkilega gaman að kynnast ykkur og heyra frá ykkur elskurnar mínar og mér þykir virkilega vænt um ykkar heimsóknir sem segir mér ýmislegt án orða...ég er allavega þess virði að kíkja í heimsókn til... og með það er ég ánægð og hrikalega montin með..ástarþakkir fyrir
og ekki síst í skugga þessara daga þarf ég eins og þið á því að halda að heyra í ykkur og þætti mér virkilega vænt um það......Ég er bara ósköp venjuleg manneskja...... en er fædd og uppalin eyjapæja......þekki ýmislegt úr þessu blessað lífi.......er ekki alveg laus við að hafa upplifað tímana tvenna.... nú eða þrenna og ég get lofað því að ég bít ekki þó svo þið kommentið á það sem ég hef að segja....það væri virkilega gaman að heyra ykkar skoðanir...ég er unnandi góðrar tónlistar...elska lögin hans Villa og er annars alæta á tónlist..er pínulítill hippi í mér. Ég er laga og ljóða höfundur og fyrsta ljóð mitt á ensku var opinberað í amerískri ljóðabóka útgáfu og fékk heilmikil komment á það frá ritstjórum ljóðabókarinnar.... ef þið smellið á myndirnar mínar getið þið skoða það. Maður er bara eins og litlu börnin...bíður spenntur eftir að fá hálfan eða heilan broskall í bókina sína
og ég segi bara enn og aftur.. ástarþakkir fyrir innlitið og endilega farið vel með ykkur í þessum rússíbana...hann á eftir að stöðvast. Ekki vera leið..ekki vera reið.. reynið að gráta ekki..þó svo það sé allt svart...það birtir upp um síðir..ég er sjálf orðið að upplifa þetta alheimsgrín eins og þið og ég get vissulega sagt frá því að ég hef verið ekki langt frá því að bugast af áhyggjum....yfir ekki endilega mér sjálfri...nei ..nei....yfir öllu..ég er bara þannig manneskja að ég tek allt inn á mig og hef stundum verið pínulítið skömmuð fyrir það...hef áhyggjur af öllu öðru nema ekki endilega af sjálfri mér og mínum heittelskaða. En vissulega hef ég áhyggjur af börnunum mínum og hvernig þeim kemur til með að reiða af í þessari óvissu allra tíma..Þetta er akkúrat það sem ég óskaði ekki eftir og það er kreppa vegna þess að börnin okkar kunna ekki að vera í kreppu...svo það á víða eftir að verða árekstrar í einkalífinu og það verða skilnaðir og síðast en ekki síst að manneskjur sem koma til með að sjá aðeins svartætti framundan taka sitt eigið líf og því miður er það orðið að veruleika. Ofan á allt...þarf fólk að syrgja þá sem gátu ekki staðið undir öllum þessum þunga..ég segi bara guð styrki ykkur elskurnar mínar í ykkar sorg hvar svo sem á landinu þið búið. Þvílíkur harmleikur..þvílíkur ömurleiki..hugur minn er hjá ykkur öllum. Og ég vona innilega og frá mínum dýpstu hjartarótum eins og allir aðrir landsmenn að nú fari hlutirnir að ske......Ég sagði við minn heittelskaða í fyrradag að ég sæi þá sýn að Geir (forsætisráðherra) væri eins og forystusauður og við almenningur eins og flokkur kinda á leið til slátrunar..við erum komin inn í einhvern óraunveruleika sem við(almenningur) höfum enga stjórn á og erum að sogast inn í einhverja hringiðu sem virðist í augnablikinu vera botnlaus og þessi botnlausa hít verður að fyllast af fólki sem hefur bara verið til sem elskendur þessa blessað lands okkar..unnið myrkrana á milli svo afkomendur okkar geti haft það betra. En það er greinilegt að við ólum nöðrur við brjóst okkar....elsku mæður þessa lands. Það sást ekki í upphafi nei.. ó ...nei en við elskum samt eftir sem áður..akkúrat þetta fólk sem fór svona hrikalega af vegi dyggðarinnar...athugið þetta fólk á sér fjölskyldur...mæður og feður og síðast en ekki síst börn sem verða fyrir margföldum áhrifum og afleiðingum..og það er ekki þeim um að kenna. Ég get líka verið grimm og einfaldað þetta og hugsað bara um þá sem komu okkur í þessa krísu...bölvað þeim til helvítis og það hef ég vissulega gert eins og margir aðrir þegnar þessa yndislega lands...Íslands..land elds og ísa...þar sem brestur á frost og funi eins og gerist þessa daga hjá hverjum Íslendingi hvar svo sem í heiminum þeir búa.Trú og efasemdir...hvað er að gerast eiginlega hjá okkur..er það furða að við heimtum svör og ekki seinna en í gær !! Ó ..himneskur ..ég ætlaði aldrei að fara út í þessa sálma en ég get ekki orða bundist..og ég biðst innilegrar afsökunar. Frekar vil ég vera baráttukona velvildar og ástar og væntumþykju..horfa á það sem stendur manni næst...ég er svoooo rík
Má ég fyrstan telja elsku eiginmann minn hann Ómar svo yndislegur og góður hann er og þar þarf ég að segja að að hann er gull af manni . Elsta dóttir mín Helena Sigríður (Sigríður í höfuðið á manneskjunni sem aðalhetjan okkar í þessu lífi) Og besti tengdasonursem ég á enn þann dag í dag og það er hann Geir minn Halldórsson þau eiga Elvar Geir og Halldór Pál alveg hreint yndislega stráka og svo sakar ekki að að segja frá því að þeir eru svo fallegir drengir og á ég ekki endilega við útlitið heldur innrætið...þeir verða einhvern tíma góðir feður eins og pabbi þeirra ..ekki spurning..og síðast en ekki síst er að sýna sig genið frá mér ljóða og laga og spileriíð..hvar og hvenær sem er.Davíð minn sem er og þýðir hinn elskaði og Ása mín elskuleg..þau gáfu mér litla telpu á þessu blessaða ári og hún heitir Sunna Emilí alveg hreinn gimsteinn og ég elska hana í tætlur og þau líka..elskurnar mínar. Írenu mína yngstu og Daða hennar heittelskaða ....mér þykir svo vænt um að sjá og horfa á hversu ástfangin þau eru og það yljar mér um hjartaræturnar..hvað get ég óskað mér betra
Mér finnst svo óumræðilega vænt um þessar manneskjur og óska þeim alls hins besta í lífinu, Og svo eru hinar yndislegu manneskjurnar í lífi mínu sem koma frá mínum heitelskaða..Eddi og Erla þau eru barasta óskasteinar hverrar tengdadóttur..svo ljúf og yndisleg í alla staði og ekkert nema velvild og hlýja í minn garð. Eðvald j.r hann er í miklu uppáhaldi hjá mér..hann ætlar að fetaí fótspor föður síns...vonandi...að vera góður og ljúfur... við konur. Enda á minn margar góðar vinkonur gegn um árin...og þá er ég að tala um vinkonur. Jæja elskurnar mínar.. ég segi bara lifið vel...haldið utan um þær manneskjursem eru hjá ykkur dags daglega ....eiginmenn og eiginkonur..börnin ykkar og aðra fjölskyldumeðlimi.
Kæru vinir sem lesið mig verið endilega róleg þó svo sé svartnætti..við erum sterkari en þið haldið...n.b Munið við gátum staðið af okkur Heimaeyjagos en það tók 4-5 ár að komast á rétt ról og athugið eitt þetta var aðeins lítið samfélag en margir tóku þátt í að reisa það upp úr öskustónni. En þegar heilt samfélag sem telur allt Ísland þá er allt annað upp á teninginn það gæti tekið aðeins lengri tíma. Vonandi með góðri samvinnu annarra þjóða tekst okkur að komast upp úr þessari að því er virðist.......botnlausu hít.
Munið bara eitt elskurnar mína..fjölskyldan er númer eitt
Kolla í kollukoti
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)