Hörpuljóð

 Sérðu ekki sorg mína

Sérðu ekki tár mín sem ég stöðvað ei get

sérðu ekki hjarta mitt berjast af kvöl

 Horfðu í augu mér

sérðu ekki söknuðinn sára

sérðu ekki.....ég er ekki hér

ég hef enga ró ég hef engan frið

ég hef enga eirð því sálin mín er friðlaus

ég get ekkert hugsað ég get ekkert gert

ég get varla talað né andað

ég get hvorki drukkið né borðað

ég er ekki hér en samt.... er ég hér

með augu mín tárvot af trega

tíminn er tímalaus allt hreyfist svo hægt

í kring um mig syrgjandi sálir

mitt hjarta er tætt og tómt

ég get varla andað svo þungt er um vik

mig heltekur....sorgin þunga

ég andvarpa...græt... í vanmætti mínum

þinn síðasta spöl..... geng ég með þér

því komin er kveðjustundin

Í hljóðri bæn ég segi...guð geymi þig.

ljóð. K.H.K '08

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helena

Þetta var fallegt og lýsir því vel hvernig sorgin getur heltekið mann svo gjörsamlega Gaman að vita að lesning pistils míns hafi á einhvern hátt kveikt í þér...  Og eins og þú bendir réttilega á á síðunni minni ,,lífið heldur áfram" og sem betur fer áttar maður sig á því einn daginn.

Stundum skilur maður hreinlega ekki hvernig fólk getur ,,haldið áfram" þrátt fyrir ítrekuð áföll og margan missinn, sem dæmi hjónin í Súðavík sem misstu öll sín börn í snjóflóðinu þarna um árið Kvöldið fyrir flóðið áttu þau þrjú börn, daginn eftir ekki neitt ! Hrikalega sorglegt 

Takk fyrir að deila þessu ljóði með okkur........

Helena, 12.9.2008 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband