Færsluflokkur: DAGBÓKIN MÍN
16.3.2009 | 08:45
Ha..ha..einn góður :)
Dear earthling.
Im a creatsure from out of Space and I have transformed in to this computer mouse.
Right now.. Im having Sex with you'r fingers and I can see that you are enjoying it....
because you are SMILING.
Please give me to the next persone.....because im realy horny..
12.3.2009 | 21:26
Í fótspor tímans.....
DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.3.2009 | 17:13
Ha..ha..ha
Við Inga systir mín sem er í heimfararleyfi þessa dagana, urðum samferða uppá Sjúkrahús í dag. Ég til að láta sprauta í öxlina en Inga til að fá lyfjagjöf.
Mikið lifandi skelfing er misjafnt hvernig blessaðir læknarnir okkar sprauta mann. Það var varla að ég finndi fyrir því...en jú svolítið verð ég að viðurkenna. Læknirinn minn er barasta alveg jafn flinkur og faðir hans sem starfaði lengi hér við Sjúkrahúsið...alveg brilljant doktor
Ég segi þetta vegna þess að ég lenti illilega í einum sem greinilega vissi ekkert hvað hann var að gera og mig langaði...meðan á misþyrmingunni stóð helst til að sparka í hann..og ég meina það
Og svo barasta borgar maður fyir þetta steinþegjandi og næstum því hljóðalaust...iss
Og þar sem blessuð börnin mín eru mikið búin að kvarta yfir hvað ég heyri illa...þá dreif ég mig í mælingu.....
Ekki tók nú betra við þegar mér var barasta sagt:Gjöss so vel að koma inn " í eitt herbergið og bara gjöss svo vel....átti að smella mér inní einhverskonar klefa sem var næstum eins og líkkista upp á endann...nema það voru jú svaka þykk hurð á klefanum svona hurð eins og maður sér í BÍó...hurð eins og á bankahvelfingu með einhverjum snúnings handafangi og reyndar var einhverskonar gluggi þar sem ég gat ef ég vildi horft nægju mína á þann sem var að testa mig.
Þetta grafhýsi var hljóðeinangrað eða allavega til að viðkomandi fórnardýr truflaðist ekki af utanaðkomandi hljóðum meðan á mælingunni stóð.....
Ég neitaði harðlega að fara inn í þetta rými og láta loka mig inni eins og hund í búri..og ef ég hefði látið það eftir þá hefði ég líklegast truflast þarna inni...... á geðinu...takk fyrir
Mín fékk sínu framgengt og settist inn í klefann en þykk hurðin var galopin fyrir fóbíusjúklinginn....mig, meðan á mælingunni stóð
Ég bara hamaðist við að reyna að hlusta í heyrnartólinu eftir hinum ýmsu hljóðum sem bárust til eyrna úr tækinu. Og með þvi að ýta á hnapp gaf ég til kynna að hljóðið hafði borist til mín
Ég baðst nú reyndar afsökunar á því að vilja ekki láta loka mig inni í klefanum en hún bara hló og gerði sem minnst úr þessu og fóbíusjúklingurinn kvaddi með bros á vör
Jæja þegar við systur vorum búnar þarna á Sjúkrahúsinu..skutlaði ég litlu systir heim enda hún þreytt og ennþá hundveik.
Hún var rétt áður en við fórum að vesenast sýnt mér Resept frá lækni og benti mér á atriði sem ég hef aldrei séð á svona reseptum áður og ég hreinlega bilaðist ha..ha.
Eins og á öllum reseptum kemur fram heiti sjúklings og kennitala o.s. fr. en það sem gerði útslagið var að í einum reitnum stóð DÝRATEGUND og þar var skrifað stórum stöfum KONA ha..ha..ha.. arrg ha..ha bilað ha..ha..ha..........
Ha...ha... bestu kveðjur úr Kollukoti
1.3.2009 | 08:55
Skúra..skrúbba og bóna...

DAGBÓKIN MÍN | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2009 | 08:48
Smá grín




21.2.2009 | 07:06
Litla systir....
Á þessari mynd sem er tekin kring um síðustu þjóðhátíð er mynd af Elfu systir fremst og svo manneskunni sem lífið snýst um í dag henni Ingu litlu systir minni.
Hún er með nýrnarsjúkdóm ..sama sjúkdóm og mamma mín heitin var með.
Elfa systir sem er með henni á þessari mynd er einnig með þennan sjúkdóm (blöðrunýru) sem geta skemmt... lifur...nýru.. bris o.fl. til lengri tíma litið. Sem sagt ýmiskonar sýkingar gera það að verkum að blöðrurnar fyllast vökva ..jafnt sem blóði og sýkingu sem valda henni miklum verkjum og dregur niður í henni alla eðlilega verkun,og öll nýrnarstarfsemi skerðist..........................
Hún er komin með tvo líklega nýrnagjafa í sama blóðflokki sem er O blóðflokkur en undirflokkar væntanlegra nýrnagjafa eru ekki alveg eins góðir og vonast var til í upphafi.
Þar eru Heiða Björk og Marý , blóð og ættskyldar mæðgur sem hafa boðist til sem væntnlegir nýrnagjafar....
Við þurfum núna á fleirri möguleikum að halda og fyrr en seinna.
Þetta er vissulega álag fyrir væntanlegan nýrnargjafa og frávik frá vinnu má vissulega meta sem 4 til 6 vikur að mér er tjáð, ef ekki meira .....( þú mátt ekki vera í neinum áhættuhópi sem lítur að þinni eigin heilsu.) er það er allt skoðað áður en þú ferð í þetta ferli.
Nýrun hennar Ingu eru orðin mjög léleg og skila ekki því sem þau þurfa að gera í dag svo styttist í að hún þarf að fara í Díalísu sem er blóðskilunartæki sem mamma þurfti að ganga í gegn um forðum daga til að halda einhverskonar heilsu þar til nýrnagjafi yrði tiltækur.
Þá er blóðinu dælt út úr líkamanum og hreinsað og dælt inn aftur og ég get sagt þér eitt að þetta ferli tekur rosalega á viðkomand. Þetta ferli tók sinn toll af elsku mömmu minni á sínum tíma...
Nú er komið að þeim tímapunkti að fá líklegan nýrnagjafa og helst í gær og því betra sem tengslin eru nær......
Inga mín kemur aldrei.....frekar en mamma.... til að biðja sér þess sem hún þarf virkilega á að halda...... því hún vill ekki eða kann ekki að biðja sér hjálpar svo þá verðum við hin sem stöndum á hliðarlínunni að vera þeir vættir vakin og sofin að koma til með að gæta hennar og fylgjast með henni í framtíðinni......
Eg er enn jafn óheppin og get ekki gefið annað nýra mitt mitt og það er jafn ömurleg tilhugsun eins og á þeim tíma þegar mamma þurfti á nýra að halda, forðum daga.
Ég óska þess innilega að upplifa ævintýr með með Ingu minni í framtíðinni fullri af orku og þeirri ævintýraþrá sem heltekur okkur Eyjafólk á stundum, líkt og á Þjóðhátið og öðrum merkum atburðum.. Inga er bara einstök og ómissandi partur af mínu lífi og margra annarra ef hún skyldi ekki vita af því...............
Það er engin önnur Inga til sem vill bara heyra" I Want to break free "eftir annað hvert lag í tjaldinu á þjóðhátíð eða heyra þetta orðatiltæki " Sooo?" ....
Ég fór að heimsækja hana Ingu mína í gærkvöldi eftir að ég fékk þær fregnir að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús.
Hún var bara nokkuð góð miðað við síðustu innlögn en þá var hún svo hræðilega þjáð af verkjum að mér leið illa að horfa upp á hennar vanlíðan..
þetta var allavega aðeins skárra í dag.. en guð einn veit hvað er í gangi hjá henni Ingu minni þessa dagana og hvað hún er að hugsa...
Kærar kveðjur úr Kollukoti
DAGBÓKIN MÍN | Breytt 12.3.2009 kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.2.2009 | 16:33
Druslan :)
Smá drusla í minni í gær og í dag...öðru nafni flesuskítur þýtt yfir á rammgerða íslensku
en maður rífur sig nú fljótlega upp úr þessu. En bölvaður slappleiki sem fylgir þessu veseni.
Þessi mynd var tekin af mér í gær þegar verst lét því svona lítur flensa út á mynd.ha..ha
Annars bestu kveðjur úr Kollukoti
17.2.2009 | 10:18
Vatnsberi...
Þar sem ég er vatnsberi af guðs náð ákvað ég að loka blogginu mínu um stundarsakir rétt á meðan ég var að finna út nýtt útlit fyrir mína síbreytilegu persónu og snúa mér svo alfarið að því að gera síðuna mína af því sem stefnt var að í upphafi. Sem sagt skemmtilegheit..ljóð og ýmislegt satt og logið ha..ha
nenni ekki að vera að velta mér upp úr fortíðinni og þeim leiðindum sem því miður hafa fylgt oft á tíðum.
Enda miklu skemmtilegra að skrifa eitthvað uppbyggilegt og eitthvað sem gleður hvern og einn. Ég hef bara haft takmarkaðan tíma til að skrifa enda mikil vinna og þreyta gerir vart við sig í enda dagsins. Svo í staðin fyrir að setjast við skriftir...sest maður fyrir framan imbakassann og bíður eftir að augnlokin verði svo þung að maður drattast úr sófanum og fer að sofa..
Svo ég hef aðallega notað helgarnar til skrifta enda alltaf vöknuð eldsnemma þó svo það sé frídagur þ.e.a.s ef ég kemst í tölvuna fyrir bóndanum ha..ha
7.2.2009 | 06:23
Góðan daginn..
Ég er sammála Helga bloggvini mínum með veðráttuna undanfarið. þvílík fegurð sem hefur umlukið okkur Eyjamenn með blíðu og fallegri birtu.
Allt eitthvað svo hreint og tært og sólin blessuð hefur kysst hverja kinn, dapra og glaða. Gefið okkur von um betri tíma. Og minnir á að vorið er ekki svo langt undan með alla sína fegurð og hlýju.
Það finnst mér líka einn besti tíminn þegar blóm og grös fara að spretta og Eyjan okkar klæðist grænum möttli. Fuglasöngurinn vekur okkur snemma dags til dáða. Allt að vakna eftir vetrardvalann og mannfólkið líka.
Og bara svona rétt til að minna á:
Frost er úti fuglinn minn
ég finn hvað þér er kalt
nærðu engu í nefið þitt
því nú er frosið allt.....
ekki gleyma smáfuglunum Kveðja úr Kollukoti
31.1.2009 | 18:01