7.9.2008 | 18:20
Þetta er bara brilljant kveðskapur....
-Vinsamleg tilmæli-
Ég veit...er ég dey...svo verði ég grátinn
þar verðurðu eflaust til taks.
En ætlarðu blómsveig að leggj'a á mig látinn
þá láttu mig fá hann strax.
Og mig eins aðra sem afbragðsmenn deyja
í annála skrásetur þú
og hrós um mig ætlarðu sjálfsagt að segja
en... segðu það heldur nú.
Og vilji menn þökk mínum verðleikum sýna
þá verður það eflaust þú
sem sjóð lætur stofna í minningu mína
en...mér kæmi hann betur nú.
Og mannúðaduluna þekki ég þína
sem þenurðu dánum í hag.
En ætlarð'að breiða yfir brestina mína
þá breidd'yfir þá í dag.
Fyrir nokkuð mörgum árum rétti kona ein mér þetta ljóð. Hún hafði ekki minnstu hugmynd um hver hafði ort þetta. En svo datt ég um þetta ljóð í gullkistunni minni og vildi leyfa öðrum að njóta því það er svo mikið til í þessu..ekki satt? Ef einhver veit deili á höfundi yrði ég þakklát fyrir þær upplýsingar.
HÖRPULJÓÐ | Breytt 10.9.2008 kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.9.2008 | 17:26
Hörpuljóð
5.9.2008 | 14:48
Hörpuljóð
5.9.2008 | 14:22
Hörpuljóð
5.9.2008 | 14:18
Hörpuljóð
Í djúpri þögn
Í djúpri þögn ég heyri rödd þína á ný
ég minnist gleðistunda
mig sefar móðurröddin hlý
við hlið þér englar standa
þeir kætast með þér nú
ég heyri hlátra gjalla
það ert þú.
Ég geymi þig
í hjarta mér
ég dreg fram minningar
í huga mér.
Þessa helgu stund
svo nálægt þér
tár mín tregablandin
finn að þú ert hér.
Handan myrkurs sé ég þig
finn þig nálægt mér
að næstum ég get snert þig
þú ert hér
Láttu ljúfa lófa þinn
strjúka enni mitt
því ég er enn í hjarta
litla barnið þitt.
ljóð. K.H.K ´03
5.9.2008 | 11:35
Hörpuljóð
- Ef ég aðeins vissi um lítinn óskastein
- sem verndargrip þér færði ef snúa viltu heim
- Þú strýkur steininn varlega ósköp nett og blítt
- og viti menn þá alsjáandi augað opnast vítt.
- Gegn um holt og hæðir yfir Atlantshaf
- sérðu það sem hug þinn fangað hefur
- þér opnast fegurst sýnin gullið sólartraf
- á Heimaey sem guð þér góður gefur
- Af dýrustu perlum hennar Heimaklettur ber
- í austri Helgafell við bæjarrætur
- í vestri Herjólfsdalur hvanngrænn orðinn er
- hann býður okkur töfra ágústnætur.
- Svo gleymdu aldrei vina hvar sem ferð um lönd
- þeim stað sem hafið kyssir fjörusand
- ef heimþráin þig bugar og togar í þín bönd
- þá mundu eitt þú átt þér griðastað
- Ljóð.K.H.K
HÖRPULJÓÐ | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2008 | 08:06
Hörpuljóð
Ljóð. K.H.K
HÖRPULJÓÐ | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2008 | 08:29
Urðarkettirnir í Austurbænum (framhald)
Við krakkarnir gátum nú oftast leikið okkur saman þrátt fyrir algjört stríðástand á stundum. Við áttum okkar augnablik...........þá var vinsemd og friður í hávegum höfð. Vopnin voru lögð niður..farið í kílubolta, píluleik, snú-snú og fleirri skemmtilega leiki. Tíminn var ekki til enda leikið langt fram á kvöld. Og þegar köll foreldra okkar bárust til okkar um að koma inn....fóru allir sem einn til síns heima, þreytt en ánægð eftir daginn. Róluvöllurinn í hverfinu var stutt frá heimili okkar. Á kvöldin var rólað og sungið. Svo í kvöldkyrrðinni heyrðust angurværar stúlkuraddir langar leiðir, nágrönnunum til mikillar ánægju. Þá ríkti friður í austurbænum. Meira að segja var sungið á útlensku En prakkarinn í okkur lá ekki mjög djúpt þrátt fyrir leikina og söngvana, nei...ó...nei því það var alveg rosalega gaman að gera at í sumum kellingunum í nágrenninu. Sérstaklega einni frúnni sem bjó beint á móti okkar húsi og svo annari frú sem átti heima aðeins vestan við húsið okkar thí...híí. Nefnilega hjá frúnni á móti mátti bókstaflega ekki "anda" á grasið hennar svo við gerðum í því að eiga erindi inn á lóðina til að stytta okkur leið yfir á róló. Fyrst fórum við að hliðinu og galopnuðum það og mundum eftir að loka því alls ekki...enda fór það rosalega í taugarnar á henni. Stigum upp á vel sópaða gangstéttina og út á hið heilaga gras. Klifruðum yfir girðinguna hennar sunnan við húsið...þræddum kartöflugarðinn hennar og svo yfir aðra girðingu til að komast inn á róló. Reyndar flýttum við okkur stundum aðeins meira en venjulega og þá sérstaklega er hún varð vör við okkur. Kom hún þá alveg bandbrjáluð með sópinn í hendinni og hótaði okkur öllu illu...svo adrenalínið þaut um allar æðar hjá okkur og það kom fyrir að við þurftum að skutla okkur yfir síðustu girðinguna svo hún næði okkur ekki. Það var til miklu styttri leið.....en þessi var bara miklu skemmtilegri
Svo var það hin frúin...veggirnir utan um lóðina hennar voru heilagir. Innfyrir þorðum við helst aldrei en notuðum hvert tækifæri til að príla og ganga upp á veggjunum. Hún ræktaði jarðarber í einu horni lóðarinnar...þau voru rosalega góð á bragðið
Það var hús, áfast við okkar hús en þar bjó besta vinkona næst yngstu systur minnar og fjölskylda hennar og oft mikill samgangur enda stelpnafans í því húsi eins og okkar. Stundum var sett upp hárgreiðslustofa heima hjá okkur og var ein systra bestu vinkonu systur minnar í hlutverki viðskiptavinar. Hún var með sítt ljóst hár sem greitt var í mikið tagl og með topp niðrí augu. Svo var náð í skæri og greiðu og hárgreiðslukonan fór að vinna sitt meistaraverk...sem varð reyndar hennar síðasta í langan...langan tíma. Viðskiptavinurinn var alveg til í að láta stytta toppinn aðeins því hann pirraði hana svolítið. Og það var nú ekki mikið mál að redda því. Byrjað var að klippa en toppurinn var alltaf síðari öðru megin. Enda skærin handónýt svo það endaði með því að toppurinn barasta hvarf....aðeins stóðu eftir ljósir broddar. Hún fór heim að sýna mömmu sinni. Hárgreiðslustofunni var umsvifalaust lokað og öll verkfæri gerð upptæk. Og í laaangan.....laaangan.. tíma fékk hárgreiðslukonan ekki að stíga fæti sínum inn á þeirra heimili.
Vegna þess að sundlaugin var nú einn af okkar leikvöllum er ekki úr vegi að minnast á fræðslugötin. Á milli klefanna í sundlauginni voru þunnir þilveggir...misgisnir. Sumar rifurnar voru eins og heilt sjónvarp fyrir forvitin augu og oft var löngum tíma eytt í að leggja augað að rifunum og virða fyrir sér fyrirbrigðið ...stráka... í næsta klefa. Það fór oft mikill tími í að skiptast á að kíkja á strákana og það verður að segjast eins og er að þeir voru margir hverjir misvaxnir á hinum ýmsu stöðum. Þannig fræddumst við um þá og þeir örugglega um okkur stelpurnar ef við vorum ekki á varðbergi. Enda kom það stundum fyrir að þegar átti að fara að kíkja þá mætti auga öðru auga á móti og þá urðu aldeilis skrækir og læti en það að getað fylgst með misgegnu þroskaskeiði strákanna þarna í klefanum yrði að öllum líkindum kallað á máli fræðinga "Þilfræði" bara nokkuð gott ha...ha.
Jæja elskurnar í bili er þessum minningarbrotum lokið en ég á vafalaust eftir að finna fleirra í gullkistunni minni sem vert er að skrifa hér á síðuna. Á meðan ég var að skrifa þessi prakkarastrik sagði ég margoft við sjálfa mig "Skammastu þín ekki Kolbrún"? Ha...ha..ha þetta var bara svo gaman og auðvitað vona ég að það sé búið að margfyrirgefa mér mína þáttöku í þessu.
29.8.2008 | 14:23
Blessuð dýrin
28.8.2008 | 07:55
Og koma svooo........
Ég er búin að senda nokkrum fjölskyldumeðlimum slóðina inn á bloggið mitt enda svo splunkunýtt. Og vil ég hvetja þessa fjölskyldumeðlimi eftir lesninguna að kvitta fyrir sig. Ég hlakka til að heyra hvað ykkur finnst heyrumst vonandi fljótlega. Smá brems.....og endilega ef þið viljið koma með einhverja skemmtilegar sögur eða bara eitthvað sniðugt...vera með...